Fá virt verðlaun fyrir barnastarf í íshokkí
Skautafélag Akureyrar hlaut í gær eina virtustu viðurkenningu sem veitt er fyrir barnastarf og þátttöku í íshokki. Félagið fékk þá Kånken Youth Retention verðlaunin á verðlaunahátíð EHC, sem eru samtök evrópskra íshokkífélaga. Frá þessu er sagt á vef Skautafélagsins í dag. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi barna- og unglingastarf og fyrir að halda börnum og ungmennum í íþróttinni með lágu brottfalli.
Með verðlaununum fylgir styrkur að fjárhæð tíu þúsund evrur, eða tæplega 1,5 milljónir íslenskra króna. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn Evrópsku hokkíverðlaunanna, en þar komu saman fulltrúar fremstu íshokkífélaga Evrópu. Sarah Smiley, íþróttastjóri Skautafélags Akureyrar, tók við verðlaununum fyrir hönd SA ásamt eiginmanni sínum, Ingvari Þór Jónssyni.

Sarah Smiley, íþróttastjóri SA, flytur þakkarræðu við móttöku viðurkenningarinnar, en eiginmaður hennar, íshokkímaðurinn Ingvar Þór Jónsson tók við verðlaununum ásamt henni. Mynd: íshokkídeild Skautafélags Akureyrar.
Kånken Youth Retention Award eru veitt af Samtökum evrópskra íshokkífélaga (EHC) og Fjällräven. Á verðlaunahátíðinni voru einnig veitt verðlaun í ýmsum flokkum.
Í frétt Skautafélagsisn segir meðal annars:
Íshokkí fyrir alla
Við val á sigurvegara var sérstaklega horft til þess hvernig SA hefur byggt upp starf þar sem sem flest börn geta tekið þátt og verið sem lengst í íþróttinni. Um 40% iðkenda félagsins eru stúlkur og um 40% ungmennaþjálfara félagsins konur, sem endurspeglar þá áherslu félagsins að skapa umhverfi þar sem allir eiga möguleika til þátttöku og framfara. Brottfall á unglingsaldri er lítið og það vakti einnig athygli hvernig stúlkur og drengir æfa og keppa saman fram á unglingsár. Félagið hefur markvisst unnið að því að tryggja öllum sömu tækifæri til þátttöku, framfara og félagslegrar tengingar. Jafnframt vakti athygli dómnefndar hvernig félagið hefur leitast við að minnka hindranir fyrir fjölskyldur með sérstökum úrræðum fyrir yngstu iðkendurna. Þar má nefna aðstoð við æfinga- og keppnisbúnað auk frístundarútu sem auðveldar börnum að komast á æfingar. Þessi úrræði hafa gert fjölmörgum börnum kleift að stunda íshokkí sem ella hefðu átt erfiðara með þátttöku.
Viðurkenning á starfi hokkífjölskyldunnar
Eins og Sarah Smiley kom inn á í þakkarræðu sinni eru þessi verðlaun ekki aðeins viðurkenning á starfi síðustu missera heldur áratuga uppbyggingu innan SA. Þau eru viðurkenning á ástríðu foreldra, sjálfboðaliða og þjálfara sem hafa staðið vaktina og lagt óteljandi klukkustundir í starfið. Afraksturinn er sú einstaka menning sem byggst hefur upp innan félagsins kynslóð eftir kynslóð og gerir SA að meira en íþróttafélagi – samfélagi og fjölskyldu. Fyrir félag úr litlu samfélagi á norðurhjara veraldar er það einstakur heiður að vera valið fyrirmyndarfélag á evrópskum vettvangi. Um leið er það staðfesting á því að þegar hokkífjölskyldan vinnur saman getur lítið félag orðið fyrirmynd fyrir önnur félög og haft raunveruleg áhrif á þróun íþróttarinnar.
Styrkur til framtíðar
Með verðlaununum fylgir styrkur að upphæð 10.000 evrur sem SA mun nýta til að efla enn frekar barna- og unglingastarf félagsins. Áherslan verður fyrst og fremst á menntun og þróun þjálfara með aukinni þjálfaramenntun, handleiðslu ungra þjálfara og áframhaldandi uppbyggingu á innra þjálfarakerfi félagsins. Markmiðið er að styrkja enn frekar það umhverfi sem hefur skilað félaginu þessari viðurkenningu og tryggja að sem flest börn geti notið góðs af starfinu til framtíðar.
Þessi viðurkenning tilheyrir öllum sem hafa komið að starfi Skautafélags Akureyrar í gegnum árin – iðkendum, foreldrum, þjálfurum, sjálfboðaliðum og stuðningsfólki.
