Fara í efni
Íþróttir

Eygló er íþróttamaður ársins – Tryggvi þriðji

Eygló Fanndal Sturludóttir, íþróttamaður ársins 2025, og Tryggvi Snær Hlinason sem varð í þriðja sæti í kjörinu. Myndir: ÍSÍ og KKÍ.

Eygló Fanndal Sturludóttir, lyftingakona úr Lyftingafélagi Reykjavíkur, er íþróttamaður ársins 2025. Gísli Þorgeir Kristjánsson, handboltamaður í Magdeburg, varð annar og Tryggvi Snær Hlinason, körfuboltamaður úr Bárðardal sem hóf ferilinn með Þór, varð í þriðja sæti í kjörinu að þessu sinni. Tryggvi, sem var nú í þriðja skipti á meðal 10 efstu í kjörinu, hafði áður lent í 9. og 10. sæti.

Vert er að geta þess að Baldvin Þór Magnússon, hlaupari í Ungmennafélagi Akureyrar, lenti í 17. sæti í kjörinu en alls hlutu 24 íþróttamenn stig. Þá fékk kvennalið KA í blaki eitt stig í kjöri liðs ársins.

Þetta var í 70. skipti sem Samtök íþróttafréttamanna kjósa íþróttamann ársins og mikið var um dýrðir í gærkvöld í Silfurbergi, í menningarhúsinu Hörpu í miðborg Reykjavíkur.

  • Þjálfari ársins var kjörinn Ágúst Þór Jóhannsson sem stýrði kvennaliði Vals í handknattleik.
  • Kvennalið Vals í handknattleik er lið ársins enda varð það bæði Íslandsmeistari og Evrópubikarmeistari; varð fyrst íslenska kvennaliðið í hópíþrótt sem verður Evrópumeistari.

Í hófinu, sem Samtök íþróttafréttamanna og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) halda í sameiningu var íþróttakonu og íþróttakarli hvers sérsambands afhent verðlaun sín, og ÍSÍ heiðraði að auki tvo einstaklinga:

  • Jón Arnar Magnússon, fyrrverandi frjálsíþróttakappi, var tekinn í Heiðurshöll ÍSÍ. Jón Arnar, íþróttamaður ársins 1995 og 1996, er sá 27. sem hlotnast sá heiður. Nánar um Jón Arnar hér á vef ÍSÍ.
  • Bjarni Malmquist Jónsson, sem starfað hefur fyrir Umfélagið Vísi og Ungmennasambandið Úlfljót, var útnefndur Íþróttaeldhugi ársins 2025. Nánar um hann hér á vef ÍSÍ.

 

Íþróttamaður ársins 2025

Hér má sjá hvaða íþróttamenn fengu stig í kjöri íþróttafréttamanna. Allir 30 félagar í Samtökum íþróttafréttamanna tóku þátt í kjörinu að þessu sinni og mest var hægt að fá 600 stig.

  1. Eygló Fanndal Sturludóttir, lyftingar – 532 stig
  2. Gísli Þorgeir Kristjánsson, handknattleikur – 458 stig
  3. Tryggvi Snær Hlinason, körfuknattleikur – 211 stig
  4. Dagur Kári Ólafsson, fimleikar – 143 stig
  5. Glódís Perla Viggósdóttir, knattspyrna – 142 stig
  6. Hákon Arnar Haraldsson, knattspyrna – 115 stig
  7. Jón Þór Sigurðsson, skotfimi – 73 stig
  8. Snæfríður Sól Jórunnardóttir, sund – 65 stig
  9. Hildur Maja Guðmundsdóttir, fimleikar – 59 stig
  10. Ómar Ingi Magnússon, handknattleikur – 51 stig
  11. Gunnlaugur Árni Sveinsson, golf – 47 stig
  12. Hanna Rún Óladóttir Bazev og Nikita Bazev, dans – 42 stig
  13. Cecilía Rán Rúnarsdóttir, knattspyrna – 38 stig
  14. Albert Guðmundsson, knattspyrna – 35 stig
  15. Thea Imani Sturludóttir, handknattleikur – 33 stig
  16. Viktor Gísli Hallgrímsson, handknattleikur – 32 stig
  17. Baldvin Þór Magnússon, frjálsíþróttir – 30 stig
  18. Konráð Valur Sveinsson, hestaíþróttir – 26 stig
  19. Elvar Már Friðriksson, körfuknattleikur – 23 stig
  20. Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir, skíði – 17 stig
  21. Elín Klara Þorkelsdóttir, handknattleikur – 12 stig
  22. Ragnhildur Kristinsdóttir, golf – 2 stig
    Jóhann Berg Guðmundsson, knattspyrna – 2 stig
    Thelma Aðalsteinsdóttir, fimleikar – 2 stig

Þjálfari ársins 2025 – þessir fengu stig í kjöri íþróttafréttamanna:

  1. Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Vals í handbolta – 97 stig
  2. Dagur Sigurðsson, þjálfari karlalandsliðs Króatíu í handbolta – 71 stig
  3. Heimir Hallgrímsson, þjálfari karlalandsliðs Írlands í fótbolta – 38 stig
  4. Einar Jónsson, þjálfari karlaliðs Fram í handbolta – 24 stig
  5. Freyr Alexandersson, þjálfari karlaliðs Brann í fótbolta – 15 stig
  6. Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í körfubolta – 11 stig
  7. Sigurbjörn Bárðarson, landsliðsþjálfari í hestaíþróttum – 7 stig
  8. Ingi Gunnar Ólafsson, lyftingaþjálfari – 4 stig
  9. Sölvi Geir Ottesen, þjálfari karlaliðs Víkings í fótbolta – 3 stig

Lið ársins 2025

  1. Valur – kvennalið í handbolta – 123 stig
  2. Breiðablik – kvennalið í fótbolta – 64 stig
  3. Fram – karlalið í handbolta – 44 stig
  4. Íslenska landsliðið í hestaíþróttum – 22 stig
  5. Stjarnan – kvennalið í hópfimleikum – 12 stig
  6. Víkingur – karlalið í fótbolta – 3 stig
  7. Karlalandslið Íslands í handbolta – 1 stig
    KA – kvennalið í blaki – 1 stig