Fara í efni
Íþróttir

Elsa og Snorri unnu skíðagöngu dagsins

Þrjár efstu í skíðagöngu dagsins, frá vinstri: Birta María Vilhjálmsdóttir (2), Elsa Guðrún Jónsdóttir (1) og Salóme Grímsdóttir (3).

Elsa Guðrún Jónsdóttir, Skíðafélagi Ólafsfjarðar, og Snorri Einarsson, Ulli, sigruðu nokkuð örugglega í skíðagöngu með hefðbundinni aðferð á Skíðamóti Íslands í dag. Birta María Vilhjálmsdóttir úr Skíðafélagi Akureyrar varð í þriðja sæti.

Keppt var í Ólafsfirði sem fyrr, konur gengu 10 km og karlar 15 km. Einn keppandi var ræstur í einu, með 30 sekúndna millibili.

Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Elsu síðan 2018 en hreint ekki sá fyrsti enda hefur hún verið fremsta skíðagöngukona Íslands um árabil. Snorri var svo að vinna sinn fjórða íslandsmeistaratitil í röð með hefðbundinni aðferð.

Á morgun fer fram sprettganga sem átti upphaflega að fara fram á föstudaginn.

Konur
1. Elsa Guðrún Jónsdóttir - SÓ
2. Salóme Grímsdóttir - Ullur
3. Birta María Vilhjálmsdóttir - SKA

Karlar
1. Snorri Einarsson - Ullur
2. Dagur Benediktsson - SFÍ
3. Albert Jónsson - SFÍ

17-18 ára stúlkur
1. Birta María Vilhjálmsdóttir - SKA

17-18 ára drengir
1. Fróði Hymer - Ullur
2. Ástmar Helgi Kristinsson - SFÍ

15-16 ára stúlkur
1. Árný Helga Birkisdóttir - SFS
2. María Kristín Ólafsdóttir - Ullur
3. Sigríður Dóra Guðmundsdóttir - SFS

15-16 ára drengir
1. Grétar Smári Samúelsson - SFÍ
2. Róbert Bragi Kárason - SKA
3. Birkir Kári Gíslason - SKA

13-14 ára stúlkur
1. Svava Rós Kristófersdóttir - SÓ
2. Dagný Emma Kristinsdóttir - SFÍ
3. Guðrún Ósk Auðunsdóttir - SÓ

13-14 ára drengir
1. Árni Helgason - SÓ
2. Eyþór Freyr Árnason - SFÍ
3. Stefán Þór Birkisson - SFS