Fara í efni
Íþróttir

Einar Rafn á förum en Jens Bragi framlengir

Línumaðurinn Jens Bragi Bergþórsson, til vinstri, hefur framlengt samninginn við KA um tvö ár en skyttan Einar Rafn Eiðsson, til hægri, er á förum í sumar. Myndir: Hafliði Breiðfjörð og Skapti Hallgrímsson.

Einar Rafn Eiðsson, spilandi aðstoðarþjálfari KA í handknattleik, er á förum frá félaginu í sumar en línumaðurinn Jens Bragi Bergþórsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA.

Einar Rafn staðfesti í viðtali við Handkastið í dag að fjölskyldan flytji suður yfir heiðar í sumar. Ljóst er að brotthvarf Einars er mikil blóðtaka fyrir KA en hann er að leika sitt fimmta tímabil með félaginu og hefur tvívegis orðið markakóngur efstu deildar með KA.

Einar gekkst undir aðgerð sl. sumar og er nýlega kominn aftur út á völlinn en hefur sinnt starfi aðstoðarþjálfara síðan í sumar. Í viðtalinu við Handkastið segir Einar ennþá óljóst hvað taki við hjá sér en hann væri þó staðráðinn í að spila áfram fyrir sunnan ef tækifæri býðst.

Unnur Ómarsdóttir eiginkona Einars hefur leikið með KA/Þór undanfarin ár en fyrir nokkrum dögum var tilkynnt að hún yrði ekki meira með liðinu á tímabilinu. Unnur er barnshafandi og eiga þau hjónin von á sínu þriðja barni í haust. Hún segir í samtali við Handkastið að hún vilji ekki útiloka neitt varðandi endurkomu á völlinn en viðurkennir að hún sé samt kannski ekki að gera ráð fyrir því.

Samningur til vors 2028

Jens Bragi Bergþórsson er nú samningsbundinn KA út tímabilið 2027–2028. Jens verður tvítugur í sumar og hefur verið lykilmaður í meistaraflokksliði KA sem hefur átt góðu gengi að fagna í vetur.

Í frétt á vefsíðu KA kemur fram að línumaðurinn efnilegi er uppalinn hjá KA og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik aðeins 16 ára gamall tímabilið 2022–2023. Síðan þá hefur hann fest sig í sessi í liðinu og leikið alls 81 leik fyrir félagið í deild og bikar. Hann hefur einnig verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands.

Hann á einnig að baki afar farsælan feril í yngri flokkum KA og var meðal annars hluti af öflugum 2006 árgangi félagsins sem vann fjölda titla og sigraði meðal annars á alþjóðlega mótinu Partille Cup.

Hjá KA er litið svo á að framlenging samningsins sé afar jákvæð fyrir félagið og að frammistaða Jens sýni að hann eigi framtíðina fyrir sér. Þá er jafnframt lögð áhersla á að félagið ætli áfram að byggja á efnilegum ungum leikmönnum.