Einar Árni í A-landsliðið í skíðagöngu
Einar Árni Gíslason úr Skíðafélagi Akureyrar (SKA) kemur nýr inn í A-landslið Íslands í skíðagöngu fyrir keppnistímabilið 2026-2027 en landsliðshópurinn var tilkynntur í vikunni. Tveir keppendur skipa A-landsliðið og Dagur Benediktsson úr Skíðafélagi Ísafjarðar var þar fyrir.
Einar Árni var áður í B-landsliðinu en þrír keppendur voru valdir í það lið nú. Það eru þeir Ástmar Helgi Kristinsson og Grétar Smári Samúelsson úr Skíðafélagi Ísafjarðar, ásamt Fróða Hymer úr Skíðagöngufélaginu Ulli.
Í frétt á vefsíðu Skíðasambands Íslands kemur fram að Vegard Karlstrøm frá Noregi er sem fyrr landsliðsþjálfari og fyrsta landsliðsæfing tímabilsins fer fram á Akureyri dagana 8.–14. júní næstkomandi, þar sem hópurinn mun hefja undirbúning fyrir komandi keppnistímabil.