Fara í efni
Íþróttir

Dómarar af stað með utandeildina á ný

Utandeild Knattspyrnudómarafélags Norðurlands – Sprett-mót KDN – hefst á ný í næstu viku og verður með breyttu sniði í sumar. Leikið verður fjögur kvöld, sjálfstætt mót í hvert skipti og ekki nauðsynlegt að taka þátt í öllum.

Keppt verður í fimm manna liðum og leiktími er 1 x 25 mínútur. Fyrsta mótið verður næsta miðvikudag, 16. júní, og síðan verða mót 15. júlí, 12. ágúst og 26. ágúst. Öll mótin verða í Boganum.

Verðlaun verða veitt bæði fyrir sigur í hverju móti og fyrir besta samanlagðan árangur sumarsins.

Nánar hér á heimasíðu KDN eða hér á Facebook síðu félagsins.