Diego Montiel kominn til KA frá Vestra
Sænski knattspyrnumaðurinn Diego Montiel skrifaði í dag undir tveggja ára samning við KA. Montiel, sem er 30 ára miðjumaður, kemur til liðs við KA-menn frá Vestra á Ísafirði.
Montiel er Svíi sem samdi við Ísafjarðarliðið fyrir nýliðið keppnistímabil. Hann varð bikarmeistari með Vestra og var þar í algjöru lykilhlutverki, að því er segir á vef KA. Hann lék alla leiki Vestra í sumar og gerði fimm mörk í Bestu deildinni. „Fyrir komu sína vestur lék hann með Varberg í sænsku B-deildinni en þar áður spilaði hann með Vendsyssel og Velje í Danmörku, Beerschot í Belgíu, og sænsku liðunum Örgryte, Gefle, Sirius, Dalkurd, Västerås og Brommapojkarna,“ segir á vef KA.
Montiel tók á sínum tíma þátt í tveimur leikjum með sænska U17 ára landsliðinu, annar þeirra var vináttulandsleik gegn Íslandi árið 2014, segir í tilkynningu KA-manna.