Blak: Karlalið KA leikur líka til úrslita
Kvennalið KA tryggði sér á fimmtudagskvöldið sæti í úrslitarimmu um Íslandsmeistaratitilinn í blaki, eins og akureyri.net greindi frá, og í gærkvöldi gerði karlalið félagsins slíkt hið sama. KA-strákarnir, sem urðu í öðru sæti Unbroken-deildarinnar, tóku á móti Aftureldingu (sem varð í 3. sæti) og sigruðu 3:0. Fyrsta hrinan var mest spennandi, lokatölur 25:22 en í tveimur þeim seinni voru þeir öryggið uppmálið og unnu báðar 25:18.
KA-menn mæta Reykjavíkur-Þrótti í úrslitunum. Þróttarar, sem urðu í fjórða sæti deildarinnar, gerðu sér lítið fyrir og unnu deildarmeistara Hamars í tveimur leikjum – fyrst 3:2 (25:16, 17:25, 25:19, 23:25, 9:15) í Hveragerði (síðan 3:0 (25:18, 25:18, 25:23) á heimavelli sínum, Laugardalshöllinni.
Fyrsti úrslitaleikurinn í KA-heimilinu á miðvikudagskvöldið. Annar úrslitaleikur liðanna verður í Laugardalshöll á sunnudag og sá þriðji á Akureyri fimmtudaginn 23. apríl. Vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari; komi til fjórða úrslitaleikis verður hann í Laugardalnum 26. apríl og sá fimmti í KA-heimilinum miðvikudag 29. apríl.