Íþróttir
Birkelund hættur sem þjálfari Þórs
29.11.2026 kl. 20:15
Mynd: Ármann Hinrik
Stjórn handknattleiksdeildar Þórs og Daniel Birkelund hafa komist að samkomulagi að Daniel stígi til hliðar sem þjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu. Þetta var tilkynnt rétt í þessu. Ekki hefur verið greint frá því hver tekur við þjálfun liðsins en upplýsingar um framhaldið „verða kynntar fljótlega,“ segir í tilkynningu frá Þór.
„Daniel kom til félagsins 1. júlí 2025 og stýrði liðinu í 9. sæti og hélt sæti okkar í deildinni á síðasta tímabili. Á þeim tíma hefur hann lagt mikla vinnu, metnað og hjarta í starfið, og fyrir það erum við afar þakklát. Handknattleiksdeild Þórs þakkar Daniel fyrir samstarfið og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni,“ segir í tilkynningunni.
Meira seinna