Fara í efni
Íþróttir

Bikarinn: Þórsarar taka á móti liði Selfoss

Þórsarar fagna sigri fyrr í vetur. Fróðlegt verður að sjá hvernig þeim gengur gegn Olísdeildarliði Selfoss í kvöld. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Þórsarar taka á móti Selfyssingum í dag í 16 liða úrslitum bikarkeppni karla í handbolta, Powerade bikarnum. Leikurinn hefst klukkan 18.30 í Íþróttahöllinni.

Selfyssingar sitja á botni Olísdeildarinnar, efstu deildar Íslandsmótsins, með tvö stig eftir átta umferðir, en Þórsarar eru í toppbaráttunni í næst efstu deild. Grill 66 deildinni.