Fara í efni
Íþróttir

Benedikt, Baldur og Anna Kamilla meistarar

Frá keppninni í risastökki í Hlíðarfjalli í gær.

Snjóbrettamót Íslands hófst í gær með keppni í risastökki og snjóbrettfimi í Hlíðarfjalli. Eftir brösugt gengi í vetur, bæði vegna veðurs og takmarkana vegna Covid, var þetta fyrsta mót vetrarins á snjóbrettum.

Rúmlega 20 keppendur voru skráðir til keppni í risastökki. Tveir stökkpallar voru í boði fyrir keppendur, misjafnlega stórir og fyrirkomulagið var þannig að besta ferðin gilti af alls þremur.

Úrslit urðu sem hér segir:

Konur
1. Anna Kamilla Hlynsdóttir - BFH
2.-3. Alís Helga Daðadóttir - SKA
2.-3. Júlíetta Iðunn Tómasdóttir - SKA

Karlar
1. Benedikt Friðbjörnsson - SKA
2. Baldur Vilhelmsson - SKA
3. Tristan Aðalsteinsson - SKA

U17 stúlkur
1. Anna Kamilla Hlynsdóttir - BFH

U17 drengir
1. Benedikt Friðbjörnsson - SKA
2. Hlynur Atli Haraldsson - SKA
3. Einar Ágúst Ásmundsson - BFH

U15 stúlkur
1. Alís Helga Daðadóttir - SKA
2. Júlíetta Iðunn Tómasdóttir - SKA

U15 drengir
1. Reynar Hlynsson - BFH
2. Hafsteinn Heimir Óðinsson - SKA
3. Björn Andri Sigfússon - SKA

Eftir að keppni lauk í risastökki (big air) tók við keppni í snjóbrettafimi (slopstyle). Farnar voru tvær ferðir og gilti betri ferðin til stiga. Í brautinni voru fimm atriði sem þurfti að fara í gegnum, tveir stökkpallar og þrjú handrið (rail).

Hjá konunum var Anna Kamilla í miklum sérflokki og fékk 51,3 stig fyrir betri ferðina sína. Næst kom Alís Helga Daðadóttir með 10 stig og Júlíetta Iðunn Tómasdóttir í 3.sæti með 7 stig. Hjá körlunum var spennan meiri en Baldur Vilhelmsson sigraði með 77 stig, næstur kom Benedikt Friðbjörnsson með 71,7 stig og í 3. sæti varð Arnór Dagur Þóroddsson með 61 stig.

Hér að neðan má sjá Íslandsmeistara í öllum flokkum.

Konur

1. Anna Kamilla Hlynsdóttir - BFH
2. Alís Helga Daðadóttir - SKA
3. Júlíetta Iðunn Tómasdóttir - SKA

Karlar

1. Baldur Vilhelmsson - SKA
2. Benedikt Friðbjörnsson - SKA
3. Arnór Dagur Þóroddsson - BFH

U17 stúlkur

1. Anna Kamilla Hlynsdóttir - BFH

U17 drengir

1. Benedikt Friðbjörnsson - SKA
2. Arnór Dagur Þóroddsson - BFH
3. Einar Ágúst Ásmundsson - BFH

U15 stúlkur

1. Alís Helga Daðadóttir - SKA
2. Júlíetta Iðunn Tómasdóttir - SKA
3. Rakel Þóroddsdóttir - BFH

U15 drengir

1. Reynar Hlynsson - BFH
2. Skírnir Daði Arnarsson - SKA
3. Arnar Bjarki Björgvinsson - BFF

 

Þrjár efstu í risastökki fullorðinna. Frá vinstri: Júlíetta Iðunn Tómasdóttir (3), Anna Kamilla Hlynsdóttir (1) og Alís Helga Daðadóttir (2).

Þrír efstu í risastökki fullorðinna. Frá vinstri: Tristan Aðalsteinsson (3), Benedikt Friðbjörnsson (1) og Baldur Vilhelmsson (2), allir úr Skíðafélagi Akureyrar.