Íþróttir
Beint flug frá Akureyri suður á bóginn í haust
30.06.2025 kl. 09:15

Spænsk sól verður í boði í beinu flugi í haust. Þessi mynd er frá Benidorm Mynd: SNÆ
Júnímánuður hefur verið heldur kaldur og blautur á Akureyri. Þeir sem sakna sólarinnar þurfa þó ekki að örvænta því sólskinið er aðeins í nokkurra klukkustunda fjarlægð frá höfuðstað Norðurlands.
Eins og Akureyri.net hefur áður greint frá þá er boðið upp á beint flug til Amsterdam og Swiss í sumar, en svo verða líka nokkrar ferðir í boði í haust og vetur til sólaráfangastaða. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir þær ferðir sem Akureyri.net hefur upplýsingar um að séu á döfinni.
- September - Alicante Úrval útsýn og Heimsferðir bjóða upp á beint flug frá Akureyri til Alicante í september. Flogið verður út þann 18. september og heim þann 25. september. Boðið er upp á gististaði í Alicante, Albir, Calpe og Benidorm.
- Október - Gran Canaria - Uppselt Heimsferðir munu fljúga eldri borgurum til Gran Canaria þann 12. október, en löngu er orðið uppselt í þá ferð. Ferðin er farin í samvinnu við Félag eldri borgara á Akureyri.
- Október - Prag Haustið getur oft verið gott í Prag, það veit ferðaskrifstofan Adventura, sem býður enn á ný upp á haustferð til Prag í beinu flugi frá Akureyri. Ferðadagar eru 25.-28. október. Fararstjórar eru hjónin Trausti Hafsteinsson og Rún Kormáksdóttir.
Beint flug til Tenerife hefur verið fastur liður á haustin hjá Heimsferðum. Tvær ferðir hafa verið skipulagðar í haust. Mynd: SNÆ
- Október og nóvember - Tenerife Heimsferðir bjóða upp á tvær brottfarir til Tenerife í haust frá Akureyri. Fyrri ferðin verður farin þann 29. október og stendur til 6. nóvember og sú seinni verður farin þann 6. nóvember og komið heim þann 14. nóvember. Búið er að opna fyrir sölu á sætum í seinni ferðina en fyrri ferðin kemur von bráðar í sölu.
- Desember - Dresden og Egyptaland Kompaníferðir buðu í fyrra upp á beint flug frá Akureyri um áramótin til Egyptalands og endurtaka leikinn nú í ár. Farið verður út þann 27. desember og heim 5. janúar. Eins og í fyrra verður flogið til strandbæjarins Hurgada. Þá verða Kompaníferðir einnig með þriggja nátta aðventuferð til Dresden í Þýskalandi. Flogið verður út þann 28. nóvember og heim þann 1. desember.
Þá er rétt að minna á að fyrsta ferð haustsins hjá easyjet til London er þann 4. október og til Manchester þann 15. nóvember.