Fara í efni
Íþróttir

Bandarískir framherjar, bakvörður úr Hólminum

Natalía Mist Þráinsdóttir Norðdahl, Nile Miller og Jalen Green eru á leiðinni í Þór.

Körfuknattleiksdeild Þórs hefur samið við kornunga körfuknattleikskonu úr Stykkishólmi, Natalíu Mist Þráinsdóttur, og bandaríska framherja í bæði liðin, Jalen Green, með reynslu úr evrópskum körfubolta, og Nile Miller, sem kemur úr öflugu háskólaliði.

Natalía Mist Þráinsdóttir kemur norður og leikur með Þór á komandi tímabili, en Snæfell tilkynnti undir lok júnímánaðar að félagið myndi ekki skrá lið til keppni í meistaraflokki kvenna á komandi vetri.

Natalía Mist, sem er fædd 2010, er bakvörður og kom fyrst við sögu í meistaraflokki Snæfells tímabilið 2024-25, þegar hún var enn í 9. bekk grunnskóla. Hún kom við sögu í 18 leikjum Snæfells í 1. deildinni á síðastliðnu tímabili.

„Natalía er metnaðarfullur og efnilegur leikmaður sem mun styrkja hópinn okkar bæði innan vallar og utan. Með miklum vilja til að bæta sig, góðu hugarfari og sterku keppnisskapi fellur hún vel að þeirri liðsheild og menningu sem við erum að byggja upp hjá Þór.“ segir í tilkynningu körfuknattleiksdeildar Þórs.

Fjölhæfur framherji

Jalen Green er rúmir tveir metrar á hæð og kemur til Þórs frá Austurríki, en hafði áður spilað tvö tímabil í Lúxemborg. Í tilkynningu félagsins segir að hann sé fjölhæfur framherji í vörn og sókn, en hann leiddi lið sitt í sögulegt úrslitaeinvígi í Austurríki á síðastliðnu tímabili. „Hann vakti jafnframt mikla athygli fyrir varnarleik sinn og endaði í 2. sæti í kjöri á besta varnarmanni deildarinnar, eftir að hafa skilað að meðaltali 1,7 stolnum boltum og 1,3 vörðum skotum í leik,“ segir í tilkynningu Þórs um leikmanninn. „Þrátt fyrir hæð sína býr Jalen yfir boltafærni og leikskilningi sem minnir á bakvörð. Hann getur leikið og varið margar stöður, nýtir lengd sína og hreyfanleika einstaklega vel og skilaði frábærri skotnýtingu á síðasta tímabili, 54% úr tveggja stiga skotum, 37% úr þriggja stiga skotum og 86% af vítalínunni.“

Kröftug í vörn og sókn

Kvennalið Þórs fær Nile Miller til liðs við sig fyrir komandi tímabil, en um hana segir í frétt körfuknattleiksdeildar Þórs: