Fara í efni
Íþróttir

Bærinn styður SKA vegna Andrésar andar

Frá undirritun samningsins: Kristrún Lind Birgisdóttir formaður Skíðafélags Akureyrar, Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og Fjalar Úlfarsson formaður Andrésarnefndar. Mynd af vef Akureyrarbæjar.

Í síðustu viku var skrifað undir samning milli Akureyrarbæjar og Skíðafélags Akureyrar vegna Andrésar andar leikanna sem fram fara síðar í mánuðinum. Markmiðið með samningnum er að styðja við Skíðafélagið þegar kemur að umgjörð og framkvæmd Andrésar andar leikanna í Hlíðarfjalli, stærsta skíðamóts hvers árs hérlendis fyrir börn síðustu áratugi.

Andrésar andar leikarnir eru fyrir börn á aldrinum 4-15 ára. Keppendur ár hvert eru um 1.000 og þeim fylgja þjálfarar, fararstjórar, foreldrar og  aðrir fjölskyldumeðlimir og gera má ráð fyrir að um 2.500 til 3.000 manns sæki leikana. Sérstök Andrésarnefnd Skíðafélags Akureyrar sér um framkvæmd mótsins.

Andrésar andar leikarnir fara að jafnaði fram frá miðvikudegi til laugardags í apríl, í sömu viku og sumardagurinn fyrsti.