Fara í efni
Íþróttir

Athugasemd vegna fréttar um súpufund

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, á súpufundi Þórs og Greifans sem um ræðir.

Eftirfarandi athugasemd barst í kvöld frá þremenningunum sem skipulögðu súpufund íþróttafélagsins Þórs og Greifans í síðustu viku og þess óskað að hún yrði birt.

_ _ _

Óhjákvæmilegt er að gera athugasemdir við frétt sem birtist á vef Mannlífs í dag, 23. febrúar, og fleiri fjölmiðlar hafa vitnað til.

Í fréttinni er greint frá súpufundi sem undirritaðir skipulögðu fyrir hönd íþróttafélagsins Þórs og veitingahússins Greifans í síðustu viku.

Fyrirsögn fréttar Mannlífs er: Upp úr sauð á fundi Vöndu hjá knattspyrnudeild Þórs: Móðir Arons Einars fékk engin svör

Fréttin hefst á þessum orðum: Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður Knattspyrnusambands Íslands, heimsótti á dögunum súpufund íþróttafélagsins Þórs á Akureyri og var tilefnið framboð hennar til stjórnar KSÍ sem fram fer í lok mánaðarins.

  • Tilefni fundarins var ekki framboð Vöndu til stjórnar KSÍ. Íþróttafélagið Þór og Greifinn héldu 29 súpufundi fyrir nokkrum árum, þar sem frummælendum var boðið og fjölmörg mál tekin til umfjöllunar. Nú var þráðurinn tekinn upp og ákveðið að bjóða formanni stærsta íþróttasambandsins á fyrsta fundinn.

Mannlíf segir að fjölmennt hafi verið á fundinum, sem er sannleikanum samkvæmt. Jafnframt að Jóna Emilía Arnórsdóttir, móðir Arons Einars Gunnarssonar, landsliðsmanns í knattpsyrnu, hafi verið á meðal fundargesta. Það er einnig hárrétt, svo og að hún hafi lagt spurningar fyrir formann KSÍ.

Síðan segir í frétt Mannlífs: Samkvæmt heimildarmanni Mannlífs, sem var á meðal gesta, segir móður Arons Einars hafa spurt einfaldra spurninga en Vanda hafi ekki viljað svara þeim. „Þetta var hálf kjánalegt hjá henni Vöndu því það eina sem Jóna Emilía vildi fá á hreint var hvort Vanda hafi á sínum tíma hringt í Aron Einar. Vanda vildi ekki svara þessari spurningu. Þeirri næstu var líka ekki svarað en þá spurði móðir Arons Einars hvort hann fengi ekki inn í landsliðið aftur þegar málið gegn syni hennar yrði fellt niður.

  • Við, undirritaðir þurfum ekki að svara fyrir Vöndu eða verja hana á nokkurn hátt, en þar sem fundurinn var á ábyrgð okkar og Þórs er rétt að upplýsa að Vanda svaraði bæði þeirri spurningu hvort hún hefði hringt í Aron Einar, og hvort hún myndi beita sér fyrir því að hann fengi ekki inn í landsliðið aftur.
  • Upplifun fólks af fundi sem þessum getur að sjálfsögðu verið mismunandi en að halda því fram að upp úr hafi soðið á fundinum eru í besta falli ýkjur að okkar mati. Fundarstjórinn, Viðar Sigurjónsson, skrifstofustjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands á Akureyri, sá til þess að allt fór fram með sóma eins og hans var von og vísa.

Sigfús Ólafur Helgason
Nói Björnsson
Páll Jóhannesson