Fara í efni
Íþróttir

Arnór og Oddur á ferð og flugi með landsliðinu

Arnór Þór Gunnarson og Oddur Gretarsson á HM í Egyptalandi. Ljósmynd: Ívar Benediktsson/handbolti.is

Handboltamennirnir Arnór Þór Gunnarsson og Oddur Gretarsson eru báðir landsliðshópnum sem mætir Ísrael og Litháen í undankeppni Evrópumótsins í næstu viku. Guðmundur Guðmundsson, landsliðþjálfari tilkynnti 18 manna hóp í dag.

Strákarnir okkar standa í ströngu í þessari leikjatörn, því leikirnir verða þrír á sex dögum í þremur löndum! Ísland mætir Ísrael í Tel Aviv þriðjudaginn 27. apríl,  Litháen í Vilnus fimmtudaginn 29. apríl og Ísrael á Ásvöllum sunnudaginn 2. maí nk. Tveir leikjanna áttu að fara fram fyrr í vetur en var frestað vegna kórónuveirufaraldursins.

HSÍ ákvað fyrir nokkrum dögum að leigja flugvél frá Ísrael til Litáens, og stytta þannig ferðalagið þar á milli úr 20 klukkustundum í fjórar. Liðið ætti því að geta æft í Litháen á miðvikudegi, daginn fyrir þann leik sem gera má ráð fyrir að verði sá erfiðasti af þessum þremur.

Ísland er eftir þrjá leiki í 2. sæti riðilsins en stendur þó betur en Portúgal sem er í 1. sæti riðilsins vegna betri innbyrðis stöðu milli liðanna. Tvö efstu liðin fara beint á EM í Ungverjalandi og Slóvakíu sem fram fer í janúar á næsta ári.

Hópurinn er þannig skipaður:

Markverðir:

Ágúst Elí Björgvinsson, KIF Kolding (38/1)

Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG (22/1)

Vinstra horn:

Bjarki Már Elísson, TBV Lemgo Lippe (79/219)

Oddur Gretarsson, Balingen-Weistetten (26/36)

Vinstri skytta:

Aron Pálmarsson, Barcelona (149/579)

Daníel Þór Ingason, Ribe Esbjerg HH (31/9)

Ólafur Guðmundsson, IFK Kristianstad (131/258)

Leikstjórnendur:

Elvar Ásgeirsson, Nancy (0/0)

Elvar Örn Jónsson, Skjern (43/111)

Gunnar Steinn Jónsson, Göppingen (42/36)

Hægri skytta:

Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (53/139)

Teitur Einarsson, IFK Kristianstad (18/18)

Viggó Kristjánsson, Stuttgart (18/44)

Hægra horn:

Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer HCC (120/341)

Sigvaldi Björn Guðjónsson, Vive Kielce (36/73)

Línumenn:

Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (60/75)

Sveinn Jóhansson, SønderjyskE Håndbold (9/15)

Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen (50/23)

  • Allir leikir Íslands verða í beinni útsendingu á RÚV.