Fara í efni
Íþróttir

Arna Sif, Hulda Björg og Hulda Ósk verðlaunaðar

Arna Sif Ásgrímsdóttir og Hulda Björg Hannesdóttir. Ljósmynd: Páll Jóhannesson.

Fyrir leik Þórs/KA og Keflavíkur í lokaumferð Íslandsmótsins í knattspyrnu í gær fengu tveir leikmenn treyju að gjöf frá stjórn Þórs/KA vegna leikjaáfanga – sú þriðja er erlendis og gat ekki tekið við sinni.

Þær Arna Sif Ásgrímsdóttir og Hulda Björg Hannesdóttir fengu afhentar Þórs/KA treyjur með 200 og 100 á bakinu – en það er sá leikjafjöldi sem þær voru verðlaunaðar fyrir að þessu sinni. Hulda Ósk Jónsdóttir spilaði sinn 100. leik fyrir Þór/KA í fyrrahaust, en hún er við nám í Bandaríkjunum og gat því ekki tekið við sinni treyju nú.

Leikjahæst í sögu liðsins

Arna Sif Ásgrímsdóttir spilaði 200. leikinn fyrir Þór/KA sumarið 2020 og er þá miðað við hefðbundna talningu eins og gert er á vef KSÍ, segir á heimasíðu Þórs/KA liðsins; þ.e. að taldir eru leikir í deild, bikar, meistarakeppni og Evrópukeppni.

Eftir leikinn gegn Keflavík í gær er Arna Sif komin í 233 leiki fyrir Þór/KA, en samtals 266 leiki (51 mark) fyrir Þór/KA og Val. Fyrsta meistaraflokksleikinn spilaði hún gegn Keflavík á Keflavíkurvelli 21. maí 2007, í fyrstu umferð Íslandsmótsins. Arna var í byrjunarliðinu, aðeins 14 ára gömul – varð ekki 15 ára fyrr en í ágúst.

„Ef við teljum eingöngu leiki í efstu deild eru þeir 227 með Þór/KA og Val hér á landi, en hún á síðan einnig að baki leiki í úrvalsdeildum þriggja annarra landa, 19 leiki í efstu deild í Svíþjóð, fimm á Ítalíu og sjö í Skotlandi. Efstudeildarleikir Örnu Sifjar eru því samtals orðnir 258, en leikir samtals í deildum, bikar, meistarakeppni og Evrópukeppni eru 297,“ segir á heimasíðu liðsins.

Níunda leikjahæst í efstu deild kvenna

„Arna Sif er komin upp í níunda sæti yfir þær sem spilað hafa flesta leiki í efstu deild kvenna hér á landi. Auk áðurtalinna leikja fyrir Þór/KA, Val, Götaborgs-Kopparberg, Verona og Glasgow City FC má svo nefna 76 leiki í vetrarmótum (deildabikar og Kjarnafæðismóti).

Arna Sif hefur svo að auki spilað 12 landsleiki – sem líklega flestir aðrir en landsliðsþjálfarar liðinna ára eru sammála um að ættu að vera mun fleiri.

Þegar allt er talið: 266+19+5+7+76+12 = 395 leikir í meistaraflokki.“

Hulda Björg í 100 leiki

Hulda Björg Hannesdóttir spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik með Þór/KA 18. maí 2016, aðeins 15 ára gömul, og hefur eingöngu spilað fyrir Þór/KA. Hún náði þeim áfanga að spila sinn 100. leik með liðinu gegn Stjörnunni á útivelli þann 6. ágúst.

Hulda Björg hefur nú spilað 104 leiki, en af þessum leikjum eru meðal annars fimm leikir í Meistaradeildinni 2018. Hulda Björg hefur skorað sjö mörk í þeim 104 leikjum sem hún hefur spilað hingað til. Auk þessarar hefðbundnu talningar á Hulda Björg að baki 32 leiki í vetrarmótum með Þór/KA.

Hulda Ósk í 100 leiki í fyrra

Hulda Ósk Jónsdóttir spilaði í fyrrahaust sinn 100. leik fyrir Þór/KA og hefur nú samtals spilað 117 leiki fyrir félagið – þar af fimm í Meistaradeild Evrópu. Hulda Ósk spilaði fyrsta leik sinn fyrir Þór/KA í maí 2016, en áður hafði hún verið hjá Völsungi og KR.

Samtals á hún að baki 172 leiki (34 mörk) með Þór/KA, KR og Völsungi. Hulda Ósk er fjarverandi, en hún stundar nú nám við Notre Dame háskólann í Bandaríkjunum og spilar fótbolta þar. Hún fær sína treyju afhenta síðar, segir á vef Þórs/KA.

Heimasíða Þórs/KA