Annar sigur Þórsara í röð og mjög sanngjarn
Þórsarar léku vel og unnu afar sanngjarnan 1:0 sigur – og gríðarlega mikilvægan – á FH-ingum á heimavelli í dag í Bestu deildinni í knattspyrnu. Þorri Ingólfsson gerði eina markið með glæsilegu skoti þegar stundarfjórðungur var liðinn af seinni hálfleik og með sigrinum komust Þórsarar upp að hlið FH-inga. Bæði lið hafa nú 21 stig, einu meira en KA sem er næst neðst og þremur meira en ÍBV sem situr á botninum.
Hefðbundin 22 umferða deildarkeppni er nú að baki og framundan fimm leikja „framlenging“ – þar sem annars vegar sex efstu liðin mætast innbyrðis í áframhaldandi keppni um Íslandsmeistaratitilinn og hins vegar þau neðri sex sem keppast um að halda sæti í deildinni. Það verður hlutskipti þeirra tveggja neðstu að falla úr deildinni. Ein viðureignin í neðri hlutanum verður leikur KA og Þórs; sá leikur verður á heimavelli KA eftir nákvæmlega hálfan mánuð, sunnudaginn 20. september skv. því sem KSÍ gaf út í kvöld.
Þrjár breytingar voru gerðar á byrjunarliði Þórs frá sigrinum á ÍBV í síðasta leik. Bjarni Guðjón Brynjólfsson var rekinn út af í Eyjum og var því í leikbanni, Birgir Ómar Hlynsson er meiddur og spænski framherjinn Victor Bertomeu settist á bekk varamanna; í stað þessa byrjuðu í dag Einar Freyr Halldórsson, Kristófer Kristjánsson og Þorri Ingólfsson.

Kevin Vazquez lék mjög vel á miðjunni hjá Þór í dag. Þessi þrautreyndi Spánverji sem gekk til liðs við félagið seint í júlí, er hægri bakvörður að upplagi en þjálfarar Þórs stilla honum upp aftast á miðjunni og hann hefur reynst hvalreki. Mynd: Ármann Hinrik
Sóknarhugur
Ljóst virtist strax frá upphafi að hvorki Þórsarar né FH-ingar væru mættir til leiks með mikla varfærni í huga í þeim tilgangi að ná sér í eitt stig heldur voru liðin í sóknarhug. Bæði þurftu tilfinnanlega á þremur að halda, kraftur var í liðunum framan af og fyrri hálfleikurinn var fjörugur.
Strax á 2. mínútu skallaði FH-ingur að marki Þórs úr mjög góðu færi í kjölfar hornspyrnu en Aron Birkir Stefánsson varði glæsilega í horn og nokkrum mínútum síðar skaut Þórsarinn Christian „Greko“ Jakobsen naumlega við hinn enda vallarins úr dauðafæri, einnig eftir horn.
Að öðru leyti skapaðist ekki mikil hætta við mörkin en undir lok hálfleiksins töldu Þórsarar sig eiga að fá vítaspyrnu. Sigfús Fannar var á fleygiferð innan vítateigs þegar varnarmaður steig á fót Þórsararnir og klæddi þannig úr skónum! Sigfús féll við við en Pétur dómari Guðmundsson sá greinilega ekki hvað gerðist og dæmdi hornspyrnu. Á meðfylgjandi myndum Ármanns Hinriks sést atvikið vel.

Yfirburðir Þórs
Seinni hálfleikurinn var eign Þórsara nánast frá upphafi til enda og þeir hefðu í raun átt að gera meira en eitt mark. Sérstaklega voru yfirburðirnir miklir eftir að Þorri skoraði þegar hálftími var eftir. Heimamenn féllu ekki í þá algengu gryfju að bakka eftir markið til að halda fengnum hlut – eins og gjarnan gerist ósjálfrátt hjá hinum ýmsu liðum, heldur létu þeir kné fylgja kviði. Voru áræðnir, vörðust mjög framarlega og voru jafnan fjölmennir í grennd við vítateig FH-inga þegar gestirnir fengu markspyrnu. Hafnfirðingar komust í stuttu máli hvorki lönd né strönd.
SIGURMARK ÞORRA
Þorri Ingólfsson, 17 ára lánsmaður frá Víkingi, gerði sigurmark Þórs í dag. Eftir laglegt spil á miðjunni þar sem Kevin Vazquez, „Greko“ Jakobsen og Einar Freyr Halldórsson komu við sögu, sendi Einar á Þorra sem lék inn í vítateig og skoraði með glæsilegu vinstri fótar skoti í hornið fjær. Frábærlega gert hjá Þorra. Þetta var fyrsta mark hans fyrir Þór og óhætt að segja að það hafi verið mikilvægt.





Myndir: Ármann Hinrik
Þórsarar höfðu ástæðu til að gleðjast mjög í dag. Þetta var annar sigur þeirra í röð og í hvorugum leiknum hafa Þórsarar fengið á sig mark. Liðsheildin var sannfærandi, vörnin var sterk og Þórsarar réðu ferðinni á miðjunni – sérstaklega í seinni hálfleik – sem skiptir auðvitað verulegu máli. Fremstu menn voru lúsiðnir, gáfu gestunum aldrei frið og náði þannig að slá þá út á laginu.
Skrefið sem Þórsarar stigu í dag var mikilvægt því með sigri hefðu FH-ingar náð sex stiga forskoti á Þór. En þetta var bara eitt skref og mörg mikilvæg framundan. Nóg er eftir, 15 stig í pottinum þegar lokakaflinn hefst, en frammistaða Þórsliðsins og baráttuhugur leikmanna gefa góð fyrirheit.
Lið Þórs: Aron Birkir Stefánsson – Kristófer Kristjánsson (Kristófer Kristjánsson 83.), Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Yann Emmanuel Affi, Vilhelm Ottó Biering Ottósson – Ágúst Eðvald Hlynsson, Kevin Vazquez, Einar Freyr Halldórsson (Aron Ingi Magnússon 89.) – Þorri Ingólfsson (Atli Sigurjónsson 75.), Christan „Greko“ Jakobsen, Sigfús Fannar Gunnarsson (Fannar Daði Malmquist Gíslason 75.).
Nú er hefðbundinni 22 leikja deildarkeppni lokið. Sex efstu liðin halda áfram baráttu um Íslandsmeistaratitilinn og mætast innbyrðis í einfaldri umferð, rétt eins og sex neðstu liðin gera. Tvö neðstu liðin að þeirri viðbót lokinni falla úr deildinni.
Leikir Þórs í neðri hlutanum eru sem hér segir, með fyrirvara um breytingar:
- Sunnudag 13. september
Valur - Þór - Sunnudag 20. september
KA - Þór - Sunnudag 11. október
Þór - ÍBV - Sunnudag 17. október
Þór - Stjarnan - Laugardag 24. október
FH - Þór