Íþróttir
Annar leikur í einvígi karlaliða KA og Þróttar
19.04.2026 kl. 06:00
Miguel Mateo Castrillo, Gísli Marteinn Baldvinsson og Ágúst Leó Sigurfinnsson í fyrsta úrslitaleiknum gegn Þrótti, sem KA vann 3:0 á heimavelli. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Karlalið KA í blaki sækir Þrótt heim í Laugardalshöllina í dag í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn.
KA hefur oddaleiksréttinn í einvíginu þar sem liðið endaði í 2. sæti deildarinnar, en Þróttarar enduðu í 4. sætinu og slógu deildarmeistara Hamars úr Hveragerði út í undanúrslitunum. Liðin mættust í KA-heimilinu á miðvikudag og þar hafði KA betur, 3-0, í leik sem þó var nokkuð jafnari en þessar lokatölur gefa til kynna. KA vann hrinurnar 25-17, 25-23 og 25-22.
- Íslandsmótið, Unbroken-deild karla í blaki
úrslitaeinvígi, leikur 1
Laugardalshöll kl. 14
Þróttur R. - KA - Útsending: Livey.events
Áskrift að rás eða stökum leikjum
Vinna þarf þrjár hrinur til að fara með sigur úr býtum í einvíginu. Þriðji leikur liðanna verður á Akureyri á fimmtudag.