Akureyringar með þrjá Íslandsmeistaratitla

Keppendur frá akureyrska glímuklúbbnum Atlantic BJJ unnu þrjá Íslandsmeistaratitla í Brasilísku Jiu - Jitsu (BJJ) um helgina, tvo í fullorðinsflokki og einn í drengjaflokki. Að auki sópuðu félagar í Atlantic að sér fernum silfurverðlaunum og tvennum bronsverðlaunum á mótinu.
Verðlaunahafar frá Atlantic BJJ
- Halldór Logi Valsson, margfaldur Íslandsmeistari, er nýgenginn til liðs við Atlantic BJJ. Hann varð Íslandsmeistari í +100 kg flokki (fjólublá, brún og svört belti) og vann silfurverðlaun í opnum flokki karla.
- Hallgrímur Freyr Baldursson varð Íslandsmeistari í +100 kg flokki með blá belti
- Tumi Briem varð Íslandsmeistari í -75 kg flokki, 16-17 ára, en hann var að
- Kristína Marsibil Sigurðardóttir vann silfurverðlaun í -65 kg flokki kvenna, fjólublá, brún og svört belti
- Halldór Ingi Skúlason vann silfurverðlaun í -100 kg flokki karla, fjólublá, brún og svört belti. Til gamans má geta þess að Halldór Ingi er Íslandsmeistari í íshokkí með liði Skautafélags Akureyrar og landsliðsmaður í íshokkí.
- Unnar Þorgilsson vann silfurverðlaun í -91 kg flokki karla, blá belti
- Samir Jónsson vann bronsverðlaun í opnum flokki unglinga, 14-17 ára drengja
- Árni Hrafn Reykjalín Guðmundsson vann brons í +60 kg flokki, 12-13 ára drengja, en hann var að taka sín fyrstu skref í keppni í BJJ
Halldór Ingi Skúlason, til vinstri, vann til silfurverðlaunaí -100 kg flokki karla, fjólublá, brún og svört belti. Mynd: Michal Swierczynski
Tumi Briem í átökum á gólfinu. Tumi varð Íslandsmeistari í -75 kg flokki, 16-17 ára drengja. Mynd: Michal Swierczynski.
- Hvít belti - byrjendur
- Blá belti - aðeins lengra komnir
- Fjólublátt, brúnt svart - þeir færustu
Brasilískt Jiu- Jitsu er vinsæl bardagaíþrótt og fara vinsældir hennar vaxandi. Íþróttin hefur fest sig í sessi hér á landi og eru starfræktir klúbbar víða um land. Atlantic BJJ hóf starfsemi á Akureyri vorið 2020 og hefur iðkendum fjölgað verulega á fyrstu árunum, en klúbburinn býður upp á æfingar fyrir börn, unglinga og fullorðna, ásamt fjölda námskeiða fyrir vinnustaði og hóða, sem til dæmis tengjast sjálfsvörn. Upplýsingar um starfssemi Atlantic BJJ má finna á Instagram-síðu klúbbsins, @Atlanticbjj.