Fara í efni
Íþróttir

Akureyringar hlutu fyrirmyndarbikar UMFÍ

Jóna Finndís Jónsdóttir og Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, eftir að Jóna Finndís veitti fyrirmyndarbikarnum viðtöku fyrir hönd Akureyringa. Mynd: UMFÍ

Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) hlaut Fyrirmyndarbikar UMFÍ á Unglingalandsmóti Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) við mótslok á Sauðárkróki í gærkvöldi. Jóna Finndís Jónsdóttir frá Ungmennafélagi Akureyrar (UFA), aðildarfélagi ÍBA, tók við bikarnum.

Hefð er fyrir því við slit mótsins að veita bikarinn þeim sambandsaðila UMFÍ, sem hefur verið til fyrirmyndar á mótinu í háttum og gjörðum, segir í tilkynningu frá UMFÍ.

Slitin fóru fram á íþróttasvæðinu á Sauðárkróki eftir kappsama en káta helgi. Þegar síðustu tónlistaratriðum mótsins lauk steig Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, á svið og sleit mótinu.

Hann sagðist vona að allir mótsgestir hafi eignast góðar minningar. Þótt um mót sé að ræða sé sigurinn fólginn í gleðinni.

„Fyrir okkur sem höfum fengið að fylgjast með ykkur um helgina er stærsti sigurinn ekki sá sem mældur er í metrum, sekúndum eða stigum. Stærsti sigurinn er að sjá gleðina, kjarkinn, samstöðuna og þá framtíð sem býr í þessum hópi unga fólks.“

Þetta var ekki eini bikarinn sem fór á loft við slit mótsins því Jóhann Steinar afhenti Gunnari Þór Gestssyni, formanni Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS), jafnframt Sigurðarbikarinn svokalla, sem er afhentur mótshaldara hverju sinni og er í minningu Sigurðar Geirdal, fyrrverandi framkvæmdastjóra UMFÍ.

Þátttakendur frá Akureyri þustu að sviðinu eftir að tilkynnt var að þeir hefðu hlotið Fyrirmyndarbikar UMFÍ, fögnuðu og stilltu sér upp fyrir myndatöku. Mynd: UMFÍ