Fara í efni
Íþróttir

Akureyrarhlaupið í gær – MYNDIR

Baldvin Þór Magnússon og Arnar Pétursson, sem átti gamla brautarmetið í hálfmaraþoni og varð í öðru sæti að þessu sinni. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Ungmennafélag Akureyrar (UFA) stóð fyrir árlegu Akureyrarhlaupi í gærkvöldi. Baldvin Þór Magnússon og Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir, bæði úr  UFA, urðu Íslandsmeistarar í hálfu maraþoni, eins og Akureyri.net greindi þá frá. Baldvin gerði sér lítið fyrir og bætti brautarmetið um rúma mínútu en Sigþóra jafnaði brautarmetið í kvennaflokki. Hér eru nokkrar myndir frá hlaupinu.