Afleitur varnarleikur varð Þórsurum að falli
Þór er kominn niður í neðsta sæti Bestu deildarinnar, efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu, eftir 4:2 tap fyrir Val á heimavelli í gær. FH gerði 1:1 jafntefli við ÍBV og komst þar með upp að hlið Þórs – bæði lið hafa sjö stig að loknum 12 leikjum – en markamunur Hafnfirðinga er hagstæðari.
Frábært veður gladdi viðstadda þegar leikurinn hófst, og raunar allan tímann, en fæstir fóru hins vegar glaðir heim; aðeins Valsarar og fáeinir áhorfendur sem fylgdu þeim að málum. Þórsarar komu sumum á óvart með því að sigra Valsmenn í fyrstu umferðinni í vor að Hlíðarenda en náðu ekki að fylgja því eftir og næla í lífsnauðsynleg stig.
Valsmenn voru mun betri í fyrri hálfleiknum og voru 2:0 yfir að honum loknum. Þeir byrjuðu hraustlega, áttu nokkrar skottilraunir á fyrsta stundarfjórðungnum og brutu svo ísinn þegar 20 mínútur voru liðnar – nokkrum mín. eftir að Bjarni Guðjón Brynjólfsson skallaði yfir Valsmarkið af markteig.

Seinna mark varnarmannsins Markus Lund Nakkim; hér skallar hann boltann í mark Þórs eftir fyrirgjöf Jónatans Inga Jónssonar þegar 38 mín. voru liðnar. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Það var varnarmaðurinn Markus Lund Nakkim sem gerði fyrsta mark leiksins með skoti af stuttu færi eftir að Albin Skoglund hafði skallað boltann í stöng og Nakkim skoraði aftur á 38. mín. Skallaði þá í markið úr markteignum eftir góða fyrirgjöf Jónatans Inga Jónssonar.
Varnarleikur Þórsara var afleitur í bæði skiptin sem Nakkim skoraði, svo ekki sé meira sagt. Furðuleg tilþrif Yann Emmanuel Affi voru í raun upphafið að vandræðunum sem kostuðu fyrra markið og þegar Nakkim skoraði skömmu síðar var Affi næstur honum en illa á verði. Aftur brást vörnin, ekki síst téður Affi, þegar Nakkim skoraði aftur; stakk sér á milli varnarmanna og var dauðafrír þegar hann stangaði boltann í markið.
Þórsarar voru heillum horfnir í fyrri hálfleik og heppnir að vera aðeins tveimur mörkum undir að honum loknum. Þeir virkuðu hreinlega skelkaðir við að halda boltanum, voru kraftlitlir og virtust ekki hafa mikla trúa á sjálfum sér.
Tvær breytingar voru gerðar á Þórsliðinu þegar seinni hálfleikurinn hófst, Sigfús Fannar Gunnarsson og Ingimar Arnar Kristjánsson leystu Fannar Daða Malmquist Gíslason og Bjarna Guðjón Brynjólfsson af hólmi. Fyrri hluti seinni hálfleiks var ekki ósvipaður því sem boðið var upp á fyrir hlé en um miðjan hálfleikinn lifnaði heldur betur yfir Þórsurum sem gerðu tvö mörk á skömmum tíma.
INGIMAR MINNKAR MUNINN
Ingimar Arnar Kristjánsson gerði fyrra mark Þórs á 66. mín. Markaskorarinn Nakkim átti afar slaka þversendingu í miðjuhringnum, Sigfús Fannar komst inn í sendinguna og boltann hrökk til Ingimars sem spretti úr spori með Nakim á hælunum og skoraði með hnitmiðuðu skoti yst úr vítateignum. Mjög vel gert hjá Ingimari sem endurtók þar með leikinn frá því í vor þegar hann skoraði með föstu, hnitmiðuðu skoti hjá Frederik Schram.
Bjarni Mark Antonsson sem var vinstra megin á vellinum þegar Ingimar fékk boltann – og gerði það að verkum að Þórsarinn var ekki rangstæður – reyndi hvað hann gat til að koma í veg fyrir mark. Tók á rás og tæklaði Þórsarann en náði því ekki fyrr en rétt eftir að Ingimar skaut. Ingimar meiddist við tæklinguna, hélt þó áfram leik í nokkrar mínútur en varð að fara af velli fljótlega eftir að Þórsarar jöfnuðu.
Ívar Orri Kristjánsson dómari sýndi Bjarna Mark gult spjald eftir tæklinguna. Þórsarar voru augljóslega á því að hann hefði átt að lyfta rauða spjaldinu og víkja Valsaranum af velli en dómarinn taldi brotið ekki nógu gróft til að verðskulda rautt spjald.
- Hér má sjá tvær myndasyrpur af marki Ingimars Arnars, hvora frá sínu sjónarhorni:
1 – Myndir: Ármann Hinrik






2 – Myndir: Skapti Hallgrímsson






KRISTÓFER JAFNAR METIN
Fjórum mínútum eftir að Ingimar minnkaði muninn jafnaði Kristófer Kristjánsson metin fyrir Þór! Löng sending kom fram undir vítateig, Sigfús Fannar skallaði boltann út til vinstri þar sem markaskorarnir Ingimar Arnar og Nakkim áttust við og þegar Þórsarinn datt skallaði sá norski boltann frá, til Danans „Greko“ Jakobsen hjá Þór sem hugsaði næsta leik og sendi boltann síðan á Kristófer sem var óvaldaður við vítateigshornið. Kristófer lék í átt að marki, fékk frið fyrir varnarmönnum og þakkaði fyrir það með því að senda boltann með fallegu skoti í markhornið fjær! Glæsilega gert.


Myndir: Ármann Hinrik
Þegar þarna var komið sögu virtust Þórsarar skyndilega komnir með byr í seglin, þeir héldu boltanum vel og sóttu meira; höfðu loks augljóslega trú á að þeir gætu bætt við marki og nælt sér í þrjú dýrmæt stig. Þess vegna var það eins og högg í magann þegar Valsmenn gerðu þriðja markið þegar tvær mín. voru eftir af hefðbundnum 90 mínútum. Þeir fengu innkast, boltanum var varpað inn að markteig þar sem tveir Valsmenn stukku upp með Ragnari Óla Ragnarssyni og höfðu betur, Bjarni Mark Antonsson fleytti boltanum síðan með höfðinu inn á miðjan markteig þar sem Albin Skoglund var óvaldaður, rak tána í boltann og stýrði honum í markið.
Afleitur varnarleikur enn og aftur hjá Þórsurum. Þeir vildu reyndar meina að brotið hefði verið á Ragnari Óla í aðdraganda marksins og virtust hafa nokkuð til síns máls; það verður að teljast einkennilegt ef sá stóri og stæðilegi drengur nær ekki að hoppa upp til að skalla boltann. En það breytir ekki því að Skoglund var dauðafrír.
Tryggvi Hrafn Haraldsson gerði svo fjórða mark Vals með síðustu spyrnu leiksins. Fékk boltann á miðjum vallarhelmingi Þórs, komst nær óáreittur inn á miðjan vítateig og átti auðvelt með að skora.
Næsti leikur Þórs er á heimavelli gegn KR á fimmtudaginn kl. 17.00, degi áður en árlegt Pollamót Þórs og Samskipa fyrir heldri knattspyrnufólk hefst á svæðinu.