Fara í efni
Íþróttir

Æfðu bæði inni og úti við frábærar aðstæður

Akureyrski hópurinn á skíðasvæðinu Idre Fjäll í Svíþjóð. Mynd: SKA

Æfingahópur 16 ára og eldri í alpagreinum hjá Skíðafélagi Akureyrar (SKA) hefur verið á ferð og flugi í upphafi vetrar, fyrst við æfingar innanhúss í Osló og síðan í Idre í Svíþjóð, á hefðbundnu skíðasvæði utanhúss; við frábærar aðstæður á báðum stöðum, að sögn Fjalars Úlfarssonar þjálfara.

Skíðatímabilið hófst hjá þessum aldurshópi við æfingar innanhúss í SNØ í norsku höfuðborginni Osló. Það voru fyrstu æfingar á snjó frá því æfingum lauk í vor. Fjalar segir aðstöðuna frábæra í SNØ. Svæðið er opið allan ársins hring og á heimasíðu staðarins er því haldið fram að aðstaðan sé slík að í boði sé tilkomumesta upplifun í vetraríþróttum innanhúss í heimi hér.

Innanhússaðstaðan til iðkunar vetraríþrótta er frábær í SNØ í norsku höfuðborginni Osló, að sögn Fjalars Úlfarssonar. Mynd: SKA

Myndi breyta miklu – eins og fótboltahúsin

Hópurinn skíðað tæplega 3.000 beygjur í svigi á fimm dögum í Osló, skv. upplýsingum Fjalars, auk þess að skíða frjálst og stunda tækniæfingar.

„Að æfa við bestu aðstæður gerir iðkendum kleift að ná því besta út úr hverri beygju,“ sagði Fjalar og nefnir hve skíðahús eins og í Osló skipti miklu máli. „Að fá skíðahús myndi breyta skíðaíþróttinni eins og fótboltahúsin breyttu fótboltanum,“ segir þjálfarinn.

Hópurinn fór í aðra æfingaferð 8. til 19. nóvember til Idre í Svíþjóð, þar sem æft var á snjó sem Svíarnir geyma undir dúk á milli skíðatímabila. Þessa níu daga æfði hópurinn 18 sinnum; þá voru skíðaðar alls tæplega 5.000 beygjur í braut í svigi og stórsvigi, auk annarra æfinga.

Skíðasvæðið í Idre Fjäll í Svíþjóð. Mynd: SKA

Geyma snjó yfir sumarið

Á skíðasvæðinu Idre Fjäll í Svíþjóð er notast við snjógeymsluaðferð, sem svo er kölluð – á ensku er talað um snow farming. Snjó er safnað saman í stórar hrúgur yfir vetrar- eða vormánuðina og hann geymdur yfir sumarið, hulinn einangrunardúkum og náttúrulegum einangrunarefnum, svo sem berki eða sagi, til að verja hann gegn sólarljósi og sumarhita.

Þegar haustar er snjónum dreift aftur yfir skíðasvæðið til að mynda snjógrunn. Þannig er mögulegt að tryggja að opna megi skíðasvæðið að hausti, a.m.k. að draga mjög úr því hve það sé háð náttúrulegri snjókomu í upphafi vetrar.

Brekkan í Idre var 350 metra löng og 20-25 metra breið, og samkvæmt Fjalari Úlfarssyni þjálfara ætti að vera hægt að útbúa slíka aðstöðu á Akureyri ef vilji væri fyrir hendi. Til þess þyrfti á að giska átta til níu þúsund rúmmetra af snjó, með lyftuspori, ef undirlagið væri rétt.

Forsvarsmenn SKA segja skíðaveturinn fara vel af stað hjá því unga og efnilega íþróttafólki sem var við æfingar í Noregi og Svíþjóð og mikil eftirvænting ríki í hópnum að geta hafið æfingar hér heima.