Fara í efni
Íþróttir

1400 „öldungar“ á blakhátíð – MYNDIR

Myndir: Skapti Hallgrímsson

Rúmlega 1400 „öldungar“ hófu keppni í blaki á Akureyri í morgun þegar þar hófst árleg stórhátíð íslenska blaksamfélagsins – Öldungur 2026 sem KA sér um að þessu sinni. Leikið er á 15 völlum í fjölnotahúsinu Boganum og á tveimur til þremur völlum í KA-heimilinu.

Um 160 lið taka þátt í mótinu Öldungarnir, þrítugir og eldri, blökuðu í gríð og erg í allan dag, hið sama verður upp á teningnum á morgun og mótinu lýkur á laugardaginn. Þá fara úrslitaleikir fram í KA-heimilinu og hátíðinni lýkur í Boganum um kvöldið með rúmlega 1000 manna glæsilegri veislu.

Ekki var annað að sjá en gleðin væri við völd í Boganum í dag enda skal mótið „vera vettvangur jákvæðra samskipta milli blaköldunga af öllu landinu með leikgleðina að leiðarljósi,“ eins og segir á vef Blaksambands Íslands.

Leikmenn liðsins HK Sól skrýddust sumarlegum búningum í Boganum í dag.