Fara í efni
Fréttir

Ýmis starfsemi færist í eðlilegt horf

Göngustígur í Naustahverfi hreinsaður í morgun. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Veður á Akureyri er mun skaplegra en aðvaranir Veðurstofu Íslands og almannavarna höfuð gert ráð fyrir. Starfsemi og þjónusta Akureyrarbæjar er því smám saman að færast aftur í eðlilegt horf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu.

„Miðað er við að Strætisvagnar Akureyrar og ferliþjónustan hefji akstur kl. 10 og leikskólar verða opnaðir kl. 12.30 en enginn matur verður fram reiddur í dag og börnin eiga því að vera búin að borða þegar þau mæta í skólann. Ekkert skólahald verður í grunnskólum bæjarins í dag en frístund verður opnuð kl. 13.00.

Sundlaug Akureyrar verður opnuð kl. 10 og skrifstofur sveitarfélagsins verða opnaðar aftur á hádegi. Á sama tíma verður opnað hjá Plastiðjunni Bjargi-Iðjulundi og í hæfingarstöðinni í Skógarlundi.

Aðvaranir Veðurstofunnar og tilmæli almannavarna voru mjög afgerandi síðdegis í gær og því rétt að taka fullt mark á þeim til að tryggja öryggi skólabarna og annarra bæjarbúa. Víðast hvar á landinu hefur veður verið skárra en óttast var að gæti orðið.“