Fara í efni
Fréttir

VÍS: Rafeyri hlýtur forvarnaverðlaun

Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS, ásamt Hannesi Garðarssyni, skrifstofu-, öryggis- og gæðastjóra Rafeyrar, Kristni Hreinssyni, framkvæmdastjóra Rafeyrar og Guðmundi Ólafssyni, forstöðumanni fyrirtækjaviðskipta VÍS.

Rafeyri á Akureyri hlaut í gær forvarnaverðlaun VÍS á forvarnaráðstefnu tryggingafélagsins.

Verðlaunin hlýtur ár hvert það fyrirtæki sem þykir skara fram úr í öryggismálum og er öðrum fyrirtækjum góð fyrirmynd, að því er segir á vef VÍS. „Verðlaunað er fyrir sterka öryggismenningu þar sem unnið er markvisst í að efla öryggisvitund og öryggishegðun.“

Rík öryggismenning

Á vef VÍS segir að stjórnendur Rafeyrar séu meðvitaðir um hvaða öryggismenning ríkir innan vinnustaðarins og hvaða áhrif þeir hafa á hana. „Öryggisstjórnun innan fyrirtækisins á sér djúpar rætur og nær í gegnum alla starfsemina. Rík áhersla er lögð á að allt starfsfólk sé meðvitað um áhættuþætti í umhverfinu með öryggis-og forvarnarþjálfun. Starfsfólk er metið út frá kunnáttu og þekkingu. Það fær svo ákveðna einkunn í kerfi sem Rafeyri hefur þróað og aðlagað að starfseminni. Þannig er tryggt að réttur einstaklingur sé valinn í verkefnin, s.s. að hann sé með rétta kunnáttu og þekkingu.“

Í tilkynningunni segir að Rafeyri hafi einnig þróað app fyrir verkfæri sem haldi utan um ástand þeirra. „Með því er tryggt að öryggið sé í fyrirrúmi, þ.e. að öll verkfæri séu í góðu ásigkomulagi og endurnýjuð á réttum tíma. Tíðni vinnuslysa á starfsfólki Rafeyrar er með því lægsta sem sést hjá VÍS allt frá upphafi — en Rafeyri hefur verið í viðskiptum hjá VÍS í tæp 30 ár.“

Ekki heppni – heldur ákvörðun

Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS, segir: „Það er okkur mikill heiður að verðlauna viðskiptavini okkar sem skara fram úr í öryggismálum og eru öðrum fyrirtækjum góð fyrirmynd. Við viljum styðja viðskiptavini okkar við að skapa sterka og öfluga öryggismenningu. Því við vitum árangur í öryggismálum er ekki heppni — heldur ákvörðun.“

Öryggismál og forvarnir voru til umræðu á ráðstefnunni, sem fram fór í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu í Reykjavík. Yfirskriftin var Hvernig mætum því óvænta — af öryggi. „Ráðstefnan, sem var fyrst haldin árið 2010, hefur skipað sér sess sem einn fjölsóttasti viðburður sinnar tegundar á Íslandi. Fjölmennt var á ráðstefnunni en á þriðja hundrað hlýddi á erindi sérfræðinga og stjórnenda sem deildu reynslu sinni af forvörnum og öryggismálum,“ segir á vef VÍS.