Fara í efni
Fréttir

„Virk efri ár“ – heilsa, hreyfing og lífsgæði

Verkefnið Virk efri ár verður kynnt í menningarhúsinu Hofi í dag frá kl. 15.00 til 16.00. Verkefninu er ætlað að styðja við heilsueflingu eldri íbúa sveitarfélagsins.

„Rannsóknir hafa sýnt að regluleg hreyfing skiptir afar miklu máli þegar kemur að því að bæta eigin heilsu og auka lífsgæði,“ segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ. „Á kynningunni í Hofi verður áhersla lögð á að miðla upplýsingum um fjölbreytt og skemmtileg tækifæri til hreyfingar. Fjallað verður almennt um mikilvægi þess að fólk yfir 60 ára sé virkt, stundi holla útivist og hreyfingu, til að halda heilsu eins lengi og frekast er kostur.“

Í upphafi flytja stutt ávörp Ellert Örn Erlingsson, forstöðumaður íþróttamála hjá Akureyrarbæ, Heimir Örn Árnason, forseti bæjarstjórnar og Hallgrímur Gíslason, formaður Félags eldri borgara á Akureyri.

Mikilvægi hreyfingar - Heilsuefling 60 + er heiti erindis sem Ásgerður Guðmundsdóttir og Margrét Regína Grétarsdóttir frá Íþrótta- og Ólympíusambandinu flytja því næst og loks kynnir Héðinn Svarfdal Björnsson verkefnið Virk efri ár á Akureyri.

Kór Félags eldri borgara á Akureyri flytur nokkur lög á samkomunni.

Kynningin er í Hömrum í Hofi. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.