Fara í efni
Fréttir

Vinna að tillögu um starf og framtíðarsýn VMÍ

Halla Björk Reynisdóttir, formaður stjórnar Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra. Mynd af vef Akureyrarbæjar.

Vinna á heildstæða tillögu um starf og framtíð Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands (VMÍ) á Akureyri. Mennta- og barnamálaráðherra hefur veitt  VMÍ 4 milljóna króna styrk vegna verkefnisins.

„Þarna er stigið langþráð skref sem gerir okkur kleift að vinna að framtíðarsýn VMÍ og skilgreina betur hlutverk okkar,“ sagði Halla Björk Reynisdóttir, formaður stjórnar Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands, eftir að hún og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirrituðu nýjan styrktarsamning ráðuneytisins við VMÍ í vikunni.

„Meginverkefni VMÍ er að efla vetraríþróttir, íþróttafræðslu og útivist, en það er orðið brýnt að skerpa sýn okkar til framtíðar svo við getum eflt starfið öllum vetraríþróttum til heilla,“ segir Halla Björk á vef Akureyrarbæjar.

Markmið samningsins og hlutverk miðstöðvarinnar er að efla vetraríþróttir, íþróttafræðslu og útivist og stuðla þannig að heilbrigðu lífi og heilsurækt meðal almennings, svo sem skólafólks, fatlaðra og keppnis- og afreksfólks í íþróttum með hefðbundnar vetraríþróttir, íþróttafræðslu og útivist að leiðarljósi.

Vetraríþróttamiðstöð Íslands var stofnuð á Akureyri árið 1995. Miðstöðin er samstarfsverkefni mennta- og barnamálaráðuneytisins, Akureyrarbæjar, Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Íþróttabandalags Akureyrar.