Fara í efni
Fréttir

Vínbúðin við Hólabraut orðin að Dýrabæ

Starfsmenn í Dýrabæ, Tinni Gíslason verslunarstjóri, til vinstri, og Víkingur Leó Sigurbjörnsson. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Hluti verslunarhúsnæðisins við Hólabraut á Akureyri sem hýsti áfengisverslun ÁTVR í ríflega 60 ár hefur nú fengið nýtt hlutverk. Þar hefur verslunin Dýrabær komið sér fyrir en sú verslun var áður á Glerártorgi.

Um þessar mundir er eitt ár liðið síðan dyrum Vínbúðarinnar við Hólabraut var lokað í síðasta skipti og ný verslun opnuð á Norðurtorgi í staðinn. Síðan þá hefur húsnæðið við Hólabraut staðið autt. Fasteignin var auglýst til sölu fyrir áramót og svo fór að Björn Ómar Sigurðarson byggingaverktaki festi kaup á húsinu.

Verslun Dýrabæjar í Hólabraut var opnuð í dag, í austurhluta gamla ÁTVR rýmisins, og starfsmennirnir, Tinni Gíslason verslunarstjóri og Víkingur Leó Sigurbjörnsson, voru í óða önn að gera allt klárt þegar akureyri.net leit við. Eins og nafnið verslunarinnar gefur til kynna fæst þar alls kyns varningur tengdur gæludýrum. Og gæludýrin sjálf eru velkomin inn í verslunina og geta þá aðstoðað eigendur sína við að velja álitlegasta fóðrið eða skemmtilegasta leikfangið.

Verslanir Dýrabæjar eru alls sex talsins og var verslunin á Akureyri opnuð vorið 2025 á Glerártorgi.