Fara í efni
Fréttir

Viltu reka kaffihús í Listasafninu?

Auglýst hefur verið eftir fólki til að reka kaffihúsið á Listasafninu á Akureyri. „Góð aðstaða er fyrir kaffihús á jarðhæð Listasafnsins. Kaffihúsið er sjálfstæð eining á góðum stað í Listagilinu en jafnframt mikilvægur hluti af safninu,“ segir á heimasíðu safnsins.

Útboðsgögn eru afhent rafrænt, smelltu hér til að sækja þau. Tekið verður við tilboðum rafrænt þangað til klukkan 16.00 fimmtudaginn 8. apríl 2021.

Nánari upplýsingar veitir Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins hlynurhallsson@listak.is og í síma 461 2619 og 659 4744.

Auður Ólafsdóttir, sem rekið hefur Kaffi og list í Listasafninu, segir á Facebook síðu kaffihússins að ástæða þess að hún hafi lokað staðnum sé einföld: Covid-19.

„Aðeins nokkrum vikum eftir opnun, 1. mars 2020, var rekstrargrundvelli kaffihússins í raun kippt undan því. Sögu þessa heimsfaraldurs þekkjum við öll og fyrir utan lagalegar lokanir kaffihússins féllu einnig niður flest allir viðburðir sem Listasafnið hafði skipulagt árið 2020. Auk þess sem aðrir viðburðir s.s. málþing, ráðstefnur, afmæli, brúðkaup, fermingar o.s.frv. fóru ekki fram. Það var því synt á móti straumnum nánast frá upphafi. Ég hélt lengi í þá von að Kaffi & list gæti staðið þetta af sér, en því miður er ekki svo. Þetta eru erfið skref, en hjá þeim verður ekki komist. Ég vil þakka fyrir frábærar móttökur og óska næsta rekstraraðila, hver sem hann verður, velfarnaðar og minna á að hér er svo sannarlega hægt að gera góða hluti við eðlilegar aðstæður. Þrátt fyrir allt er ég þakklát fyrir tækifærið og viðtökurnar að ógleymdu því góða fólki sem ég hef kynnst á þessum tíma. Starfsfólki Listasafnsins vil ég þakka sérstaklega fyrir samstarfið og samvinnuna. Það vantaði ekki viljann til að halda áfram, en því miður verður að láta hér staðar numið,“ skrifaði Auður fyrir nokkrum dögum.