Fara í efni
Fréttir

Viltu leigja söluhús á Jólatorginu?

Frá Jólatorginu 2025. Mynd af vef Akureyrarbæjar.

Akureyrarbær hefur opnað fyrir umsóknir frá söluaðilum sem vilja taka þátt í Jólatorginu á Ráðhústorgi í aðdraganda jóla. Jólatorgið verður starfrækt um helgar frá 21. nóvember til 20. desember og er umsóknarfrestur til og með 11. október.

Í frétt á upplýsingavef Akureyrarbæjar kemur fram að leitað sé eftir fjölbreyttum hópi einstaklinga, samtaka og fyrirtækja sem hafi til sölu vandaðar vörur með skýra tengingu við jólahefðir. Áhersla verður lögð á fjölbreytt úrval af gæðavörum, meðal annars mat og drykk, en einnig upplifun sem tengist jólunum. Markmiðið er að gera Jólatorgið að föstum hluta af aðventunni á Akureyri. Þar geta gestir gengið á milli söluhúsanna, skoðað vörur og notið jólastemningarinnar.

Jólatorgið verður formlega opnað laugardaginn 21. nóvember klukkan 16, þegar tendrað verður á jólatrénu á Ráðhústorgi.

Leiguverð fyrir eitt hús er 20.000 krónur fyrir eina helgi. Hægt er að sækja um hús fyrir eina eða fleiri helgar, en ekki staka daga. Tveir söluaðilar geta einnig deilt einu húsi og miðast leigugjaldið þá við húsið, óháð fjölda aðila. Í leigugjaldinu er innifalinn kostnaður við uppsetningu og rekstur húsanna og þrif á svæðinu. Akureyrarbær mun jafnframt kynna Jólatorgið og standa fyrir ýmsum viðburðum til að laða gesti að torginu.

Jólatorgið verður opið frá klukkan 14 til 18 á laugardögum og frá 14 til 17 á sunnudögum, að undanskildum opnunardeginum 21. nóvember þegar opið verður frá klukkan 16 til 18.

Umsóknir fara fram í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar og er umsóknarfrestur til og með 11. október.