Fara í efni
Fréttir

Viltu leigja elsta hús Akureyrar – Laxdalshús?

Akureyrarbær hefur auglýst til leigu Laxdalshús, elsta hús bæjarins, sem stendur við Hafnarstræti 11. Húsið er byggt árið 1795.

Húsið var reist sem íbúðarhús en hefur á undanförnum árum m.a. gegnt hlutverki veitingastaðar, skrifstofuhúsnæðis, sýningarrýmis og æfingaraðstöðu fyrir kammerkór. Það er 134 fermetrar og við það stendur 18 fermetra skúr. Húsið er friðað og fyrirhuguð starfsemi þarf að taka mið af því. Framleiga hússins er óheimil.

Um útleiguna fer samkvæmt viðmiðunarreglum um notkun á Laxdalshúsi, Friðbjarnarhúsi og Gudmands Minde sem finna má á vefsíðu Akureyrarbæjar – hér.

Áhugasamir geta skilað inn hugmyndum um notkun á húsinu og leigufjárhæð til Akureyrarstofu í síðasta lagi miðvikudaginn 19. maí næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður Akureyrarstofu í netfanginu thorgnyr@akureyri.is eða í síma 460-1151.