Vilhjálmur Bragason valinn bæjarlistamaður
Vilhjálmur Bergmann Bragason, leikari, tónlistarmaður og höfundur var valinn bæjarlistamaður Akureyrar árið 2026. Það var kunngjört á Vorkomu Akureyrarbæjar, árlegri samkomu sem haldin var í Menningarhúsinu Hofi í gær. Heiðursviðurkenningu Menningarsjóðs Akureyrarbæjar 2026 hlaut Kristín Aðalsteinsdóttir „fyrir mikilsvert framlag sitt til menningar og mennta á Akureyri og ekki síst fyrir skráningu og varðveislu á menningararfi Akureyrar og Norðurlands,“ eins og segir í tilkynningu frá sveitarfélaginu.
Á hátt í 20 ára ferli hefur Vilhjálmur látið til sín taka á afar breiðu sviði listar; „hvort sem um er að ræða tónlist, leiklist, leikstjórn, handritagerð eða þýðingar og hefur hann sett áþreifanlegt mark sitt á listalíf á Akureyri sem og á landsvísu,“ segir í tilkynningunni.

- Sumarlistamaður Akureyrar 2026 er Mahaut Ingiríður Matharel, „ungur hörpuleikari sem á framtíðina svo sannarlega fyrir sér,“ segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ.
- Feðgarnir og arkitektarnir Geirharður Þorsteinsson, heitinn, og Þorsteinn Geirharðsson hlutu Byggingarlistarverðlaun Akureyrarbæjar fyrir Verkmenntaskólann á Akureyri. „Rík næmni fyrir fegurð einfaldleikans og skilningi fyrir formun hússins undir starfsemi verk- og bóknáms eru meginrök faghóps fyrir vali á arkitektunum sem handhöfum byggingarlistaverðlauna Akureyrarbæjar fyrir árið 2026.“
Mannréttindaviðurkenningum Akureyrarbæjar er ætlað að auka sýnileika þeirra verkefna sem lúta að velferð innan samfélagsins og veita þakkir fyrir framlag í þágu þess:
- Viðurkenningu í flokki félagasamtaka hlýtur almannaheillafélagið Vonarbrú fyrir mannúðarstarf á Gasa. Kristín Bjarnadóttir er stofnandi félagsins.
- Viðurkenningu í flokki einstaklinga hlýtur Sæunn Ísfeld Guðmundsdóttir. „Sæunni var veitt viðurkenning fyrir störf sín í þágu samfélagsins. Þau störf lúta að óeigingjörnu sjálfboðaliðastarfi í þágu þeirra sem aðstoðar þurfa vegna aðstæðna sinna og stuðla þannig að velferð einstaklinga og fjölskyldna.“

Vilhjálmur B. Bragason, bæjarlistamaður Akureyrar 2026.
Fyrir slettu ári birti akureyri.net bráðskemmtilegt viðtal Rakelar Hinriksdóttur við Vilhjálm Bergmann Bragason í þremur hlutum, og ástæða er til að vekja athygli á því í ljósi þess að hann er bæjarlistamaður þetta ár.
- 1. hluti – „Ég er gömul sál og nörd í grunninn“
- 2. hluti – „Fékk fyrsta hlutverk níu ára gamall hjá LA“
- 3. hluti – „Ég er eiginlega ófær um að grínast ekki“