Fara í efni
Fréttir

Viðbragðsaðilar á ferð – ekkert að óttast

Í dag munu viðbragðsaðilar í Eyjafirði í samstarfi við ISAVIA halda flugslysaæfingu á Akureyrarflugvelli. Hún hefst klukkan 14:00 og tekur um tvær klukkustundir.

„Í tengslum við æfinguna má því sjá mikið af viðbragðsaðilum á ferðinni um götur Akureyrar sem og á flugvallarsvæðinu, en það er ekkert að óttast,“ segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra.

„Nú undanfarna daga hafa viðbragðsaðilar verið í ýmiskonar fræðslu sem tengist verkefnum sem þessum og ávallt er nauðsynlegt að skerpa á þessum hlutum svo að samstarfið verði sem best þegar á reynir þolendum í hag.

Þá var í gær haldin skrifborðsæfing þar sem þeir aðilar sem koma að skipulagi og stjórnun af einhverju tagi fóru í gegnum ferlið þegar verkefni sem þessi koma upp.“