Fara í efni
Fréttir

Verslun með nauðsynjar opnuð í miðbænum

Niðursuðudósir, dömubindi, hveiti og tómatsósa er meðal þess sem mun fást í Leyni versluninni í miðbæ Akureyrar. Mynd: SNÆ

Ný verslun, Leyni verzlun, hefur verið opnuð í miðbæ Akureyrar. Verslunin, sem er til húsa við Ráðhústorgið, selur ýmsa matvöru og smávörur sem nauðsynlegar eru í daglegu lífi.

Það er Vikar Mar Valsson sem stendur á bak við verslunina en hann rekur einnig Leynibarinn sem er staðsettur í Hafnarstræti 95. Leyni verzlun er aðeins nokkrum metrum frá barnum við Brekkugötu 1b. Eimur var áður með skrifstofu í húsnæðinu en færði sig nýlega yfir í Skipagötu 9. 

Breytingar við Ráðhústorg. Nauðsynjavöruverslunin er til húsa í Brekkugötu 1b, fyrir neðan Torg guesthouse.  Húsnæðið við hliðina, sem hýsti áður Skóhúsið, stendur tómt og verður spennandi að sjá hvaða rekstur kemur þangað. Mynd:SNÆ