Fara í efni
Fréttir

Verslun Kappahl opnuð á Glerártorgi

Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir og Albert Þór Magnússon, umboðsaðilar Kappahl og Newbie á Íslandi.

Verslun sænska tískuvörumerkisins Kappahl verður opnuð á Glerártorgi kl. 12:00 á morgun, laugardag, og markar það „mikilvægt skref í að gera vörumerkið aðgengilegra fyrir viðskiptavini út um allt land,“ segir í tilkynningu frá umboðsaðilum Kappahl og Newbie á Íslandi. „Verslunin mun bjóða uppá allar vörulínur Kappahl; dömu- og undirfatnað, barnafatnað, herrafatnað og auðvitað krúttlega lífstílsvörumerkið Newbie.“

Fyrr í þessum mánuði var verslun Kappahl opnuð í Smáralind, „þar sem þúsundir gesta mættu og viðtökurnar fóru fram úr björtustu vonum,“ segir í tilkynningunni. „Við erum gríðarlega ánægð með þær móttökur sem Kappahl hefur fengið hingað til. Það er ljóst að okkar frábæru viðskiptavinir kunna vel að meta samsetninguna af skandinavískri hönnun, [miklum] gæðum og hagkvæmu verði,“ er haft eftir Lóu Dagbjörtu Kristjánsdóttur, sem er umboðsaðili Kappahl og Newbie á Íslandi ásamt manni sínum, Albert Þór Magnússyni.

Í tilkynningunni segir að Newbie hafi notið mikilla vinsælda á Norðurlöndum og í Bretlandi og sé þekkt fyrir tímalausa hönnun, mjúkar línur og áherslu á náttúruleg efni. Þar segir að opnun verslunarinnar á Glerártorgi marki mikilvægt skref í að þjónusta betur viðskiptavini á landsbyggðinni. „Það er okkur mjög mikilvægt að ná til viðskiptavina um allt land. Með opnuninni á Akureyri erum við að taka stórt skref í þá átt að gera Kappahl aðgengilegt fyrir alla landsmenn, en Norðlendingar hafa fjölmennt hingað árum saman,“ er haft eftir Albert Þór.

 

Kappahl var stofnað í Svíþjóð árið 1953 „og er í dag eitt af leiðandi tískuvörumerkjum á Norðurlöndum með yfir 340 verslanir í Evrópu. Fyrirtækið leggur ríka áherslu á sjálfbærni, meðal annars með notkun lífrænnar bómullar, rekjanleika í framleiðslu og ábyrg vinnubrögð í allri virðiskeðjunni,“ segir í tilkynningunni. „Verslanir Kappahl bjóða upp á fatnað fyrir konur, karla og börn – allt frá sígildum grunnflíkum til tískufatnaðar og undirfatnaðar – á aðgengilegu verði.“

Samhliða opnun verslunarinnar geta viðskiptavinir einnig verslað í gegnum netverslunina kappahl.is, sem er opin allan sólarhringinn.

Opnun verslunarinnar á Akureyri er hluti af stærra uppbyggingarferli þar sem stefnt er að því að opna alls átta Kappahl-verslanir og að minnsta kosti eina Newbie-verslun á Íslandi á næstu misserum, að því er fram kemur í tilkynningunni. „Við erum rétt að byrja. Það eru spennandi tímar framundan og við hlökkum til að halda áfram að byggja upp Kappahl og Newbie sem sterk og traust vörumerki á Íslandi,“ segir Albert.