Fara í efni
Fréttir

Verkfærum stolið á fjórum stöðum í bænum

Brotist var inn á vinnusvæði á fjórum stöðum í bænum fyrr í mánuðinum og fjölmörgum verkfærum af ýmsu tagi stolið. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.
 
Málin eru í rannsókn hjá lögreglunni og hefur ekki tekist að hafa hendur í hári þjófanna. „Þetta er auðvitað algjörlega óþolandi því burtséð frá verðmætinu á viðkomandi verkfærum setur þetta starfsemina á vinnustöðunum að einhverju leyti úr skorðum. Tjón framkvæmdaaðila er því mikið,“ segir meðal annars í tilkynningu lögreglunnar.
 
Þá er því beint til þeirra sem starfa á byggingarsvæðum, viðhaldssvæðum eða öðrum sambærilegum vinnustöðum að huga sérstaklega að öruggri vörslu eigna. Í því sambandi er mikilvægt að verkfæri og önnur verðmæti séu tryggilega geymd utan vinnutíma og að gripið sé til viðeigandi öryggisráðstafana, til dæmis með myndavélaeftirliti. Þannig má draga úr eignatjóni og auka öryggi á vinnusvæðum, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglunnar.