Velferðarstjarnan 2026 – Sala hefst á morgun
Árleg fjáröflun Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis hefst á morgun, laugardag 7. nóvember, með sölu Velferðarstjörnunnar á Glerártorgi. Þetta er fjórða árið í röð sem sjóðurinn býður stjörnuna til sölu, allir sem koma að verkefninu gefa vinnu sína og allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til Velferðarsjóðsins og þaðan til efnaminni einstaklinga og fjölskyldna á Eyjafjarðarsvæðinu.
„Salan hefur gengið mjög vel undanfarin ár og Velferðarstjarnan hefur vakið mikla og jákvæða athygli á starfsemi sjóðsins. Það er virkilega ánægjulegt að sjá hversu margir vilja leggja málefninu lið,“ segja þær Guðný Jóna Þorsteinsdóttir ráðgjafi hjá sjóðnum og Gígja Hólmgeirsdóttir formaður stjórnar Velferðarsjóðsins, í tilkynningu frá sjóðnum.
Ný stjarna á hverju ári
Velferðarstjarnan er samstarfsverkefni Velferðarsjóðsins, Glerártorgs og Slippsins. Ný hönnun stjörnunnar kemur fyrir augu almennings um helgina og bætist hún þar með í safn þeirra sem hafa keypt stjörnuna undanfarin ár. „Við erum svo heppin með okkar öflugu samstarfsaðila. Þær Elva Ýr Kristjánsdóttir og Kristín Anna Kristjánsdóttir, sérfræðingar markaðsmála á Glerártorgi, hafa hannað nýtt útlit stjörnunnar fyrir jólin 2026 en Slippurinn sér um framleiðsluna líkt og fyrri ár,“ segir Guðný Jóna.
Þær hvetja íbúa til að næla sér í stjörnu og styðja um leið þá sem sem þurfa á hjálp að halda. „Við lítum á Velferðarstjörnuna sem tákn um samstöðu, hlýju og von – þau gildi sem einkenna bæði jólin og samfélagið okkar hér á Eyjafjarðarsvæðinu,“ segja þær Guðný Jóna og Gígja.

Velferðaraðstoð allt árið um kring
Starf Velferðarsjóðsins byggir á samstarfi sem nær aftur til ársins 2013 þegar Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn á Akureyri, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar og Rauði krossinn við Eyjafjörð tóku höndum saman. Þá var sameinast um jólaaðstoð til einstaklinga og fjölskyldna sem þurftu á að halda hér á Eyjafjarðarsvæðinu. Vegna aukinnar þarfar var samstarfið útvíkkað og Velferðarsjóður Eyjafjararsvæðið stofnaður árið 2021. Nú veitir sjóðurinn velferðaraðstoð allt árið um kring.
Starf sjóðsins er mest fyrir hátíðarnar. Árið 2025 óskuðu um 450 fjölskyldur og einstaklingar eftir jólaaðstoð frá sjóðnum og vel yfir 1.000 úthlutanir voru á inneignarkortum það ár. „Reynslan sýnir að eftirspurnin eykst verulega þegar líður að jólum. Það sem af er þessu ári hafa mánaðarlegar úthlutanir verið um 600 talsins frá janúar til október og jólaaðstoðin er þá ótalin. Við eigum von á að um 450 umsóknir berist vegna jólaaðstoðarinnar í ár,“ segir Gígja.
Þær segja aukna eftirspurn síðustu ára hafa kallað á nýjar leiðir til fjáröflunar og Velferðarstjarnan sé gott dæmi um hvernig skapandi samstarf getur skilað miklu. „Þetta verkefni hefði ekki orðið að veruleika nema fyrir velvilja og stuðning Glerártorgs og starfsmanna Slippsins sem leggja málefninu lið með ómetanlegu vinnuframlagi sínu.“
Óskipt til efnaminna fólks
Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis byggir starfsemi sína á stuðningi fyrirtækja, félagasamtaka og einstaklinga. Allir styrkir og allt fé sem safnast í sjóðinn er nýtt óskipt til aðstoðar efnaminni einstaklinga og fjölskyldna á svæðinu, en starfssvæði sjóðsins er allur Eyjafjörður, frá Siglufirði í vestri til Grenivíkur í austri.
Sjálfboðaliðar sjóðsins munu sjá um sölu Velferðarstjörnunnar á Glerártorgi á morgun, laugardag 7. nóvember. Eftir það verður hægt að kaupa stjörnuna í verslun Heimilistækja á Glerártorgi fram að jólum.
„Þeir sem festa kaup á stjörnunni eru ekki aðeins að eignast fallegt jólaskraut heldur leggja jafnframt sitt af mörkum til að tryggja að efnaminna fólk geti fengið mat á borðið yfir hátíðarnar því kaup á einni stjörnu getur staðið undir sem nemur einni máltíð fyrir einstakling í neyð. Hver seld stjarna skiptir máli og er tákn um samstöðu og hlýju í samfélaginu,“ segja Guðný Jóna og Gígja.
- VILTU STYÐJA VELFERÐARSJÓÐINN?
Þeir sem vilja styðja við starfsemi Velferðarsjóðsins geta lagt inn frjáls framlög á reikning sjóðsins, að því er fram kemur í tilkynningu.
Reikningsnúmer: 0302 - 26 - 003533
Kennitala: 651121-0780
Einnig er hægt að hafa samband í tölvupósti á jolaadstod@gmail.com
Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis er félag á almannaheillaskrá.