Fara í efni
Fréttir

Velferðarsjóður: milljón vegna sölu stjörnunnar

Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis fékk á dögunum eina milljón króna vegna sölu velferðarstjörnunnar fyrir jólin.

Alls seldust um 300 stykki af velferðarstjörnunni. „Þetta er mikilvæg viðbót við fjáröflunina okkar,“ segir Herdís Helgadóttir, formaður stjórnar sjóðsins í tilkynningu á vef Glerártorgs. „Ekki bara upphæðin sjálf, þó hún skipti vissulega miklu máli, heldur er líka svo magnað að hugsa til þess hversu margir einstaklingar hafa styrkt söfnunina okkar með því að kaupa velferðarstjörnuna. Það er ómetanlegt að finna þennan mikla velvilja í garð sjóðsins.“

Þetta nýja verkefni, Velferðarstjarnan, var samstarf sjóðsins, Glerártorgs og Slippsin. Slippurinn framleiddi stjörnuna, sem Kristín Anna Kristjánsdóttir og Elva Ýr Kristjánsdóttir, verkefnastjórar markaðsmála á Glerártorgi hönnuðu. Stjarnan var til sölu á Glerártorgi, fyrst á sérstökum styrktarviðburði í nóvember en síðan í verslun Lindex.

Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis er samstarfsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins á Akureyri, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og nágrennis og Rauða krossins við Eyjafjörð. Sjóðurinn aðstoðar efnaminni einstaklinga og fjölskyldur bæði fyrir jólin og á öðrum tíma árs en reynslan sýnir að eftirspurnin eftir aðstoð er mest í aðdraganda jólanna. Reglubundnar úthlutanir árið 2023 voru rúmlega 500 talsins, sem er mikil aukning frá síðustu árum. Umsóknir um jólaaðstoð fyrir nýliðin jól voru einnig um 500 talsins, sem er svipaður fjöldi og fyrir jólin 2022.

Vegna mikilla verðhækkana í samfélaginu var ákveðið að hækka styrkupphæðir í jólaaðstoðinni. Því er ljóst að þó fjöldinn hafi verið svipaður árin 2022 og 2023, er jólaaðstoðin 2023 sú langdýrasta hingað til. „Ég verð að viðurkenna að þetta var ekki auðveld ákvörðun,“ segir Herdís. „Okkur fannst nauðsynlegt að hækka styrkinn en við vorum auðvitað meðvituð um að því fylgdi ákveðin áhætta. Hvað ef við næðum ekki að safna nægilega miklu? En samtök, fyrirtæki og einstaklingar í samfélaginu svöruðu hjálparkalli okkar og fyrir það erum við afar þakklát,“ segir Herdís Helgadóttir.