Fara í efni
Fréttir

Velferðarsjóður: 1,1 milljón frá Einingu-Iðju

Mynd af vef Einingar-Iðju

Verkalýðsfélagið Eining-Iðja afhenti nýverið Velferðarsjóðnum á Eyjafjarðarsvæðinu 1,1 milljón króna í styrk. Félagið hefur í mörg ár styrkt Jólaaðstoðina, samstarfverkefni Mæðrastyrksnefndar, Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Hjálpræðishersins á Akureyri sem hefur staðið yfir frá árinu 2013. „Þetta samstarf hefur gengið mjög vel og ákváðu félögin í fyrra að stofna Velferðarsjóð Eyjafjarðarsvæðis og er samstarfið nú á ársgrundvelli en ekki einungis fyrir jólin,“ segir á vef Einingar-Iðju.

„Um miðjan nóvember hófst fjáröflun vegna jólaaðstoðarinnar og á sama tíma opnaði sjóðurinn nýja heimasíðu, www.velferdey.is, þar sem má nálgast upplýsingar um velferðaraðstoð sem sjóðurinn veitir, til að byrja með er áhersla lögð á að kynna jólaaðstoðina 2022. Rafrænar umsóknir um jólaaðstoð fara í gegnum síðuna og vonast sjóðurinn að rafrænar umsóknir geri ferlið auðveldara fyrir alla sem málið varðar. Með tímanum má svo búast við frekari upplýsingum á síðunni, til dæmis um bjargráð og aðra aðstoð sem í boði er hér á svæðinu.“

Markmið verkefnisins er að styðja efnaminni fjölskyldur og einstaklinga á Eyjafjarðarsvæðinu og kemur fram á heimasíðunni að söfnunarféð er notað til kaupa á gjafakortum sem einstaklingar geta verslað mat fyrir. „Samtals fengu 410 fjölskyldur og einstaklingar jólaaðstoð árið 2021. Á árinu 2022 hefur orðið mikil fjölgun umsókna og búast má við því að jólaaðstoðin verði engin undantekning á því. Mörg heimili á Eyjafjarðarsvæðinu eru illa stödd fjárhagslega og þurfa á aðstoð að halda. Því má gera ráð fyrir miklum fjölda umsókna um jólaaðstoð árið 2022. Stjórn velferðarsjóðsins þakkar fyrirtækjum, einstaklingum og samtökum fyrir ómetanlegan stuðning í gegnum árin og vonast eftir góðum viðtökum þetta árið,“ segir jafnframt á síðunni.

Rétt er að vekja athygli á því að þessir aðilar aðstoða fólk um allan Eyjafjörð, frá Fjallabyggð að Grenivík.