Fréttir
Vel heppnuð dagskrá í tilefni 112 dagsins
16.02.2026 kl. 10:00
Mynd: Ármann Hinrik
Fjöldi fólks lagði leið sína á Glerártorg í gær þar sem fjölbreytt dagskrá var í tilefni 112 dagsins. Dagurinn sjálfur var í síðustu viku, 11.2., enda dagsetningin táknræn og markmið einmitt ekki síst að minna á símanúmerið mikilvæga, 1-1-2 ásamt því að vekja athygli á sálrænu viðbragði.
Margs konar kynningar og sýningar voru í boði en það var ekki síst björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar sem vakti athygli fólks eins og hún gerir gjarnan, til dæmis á árlegum Flugdegi Flugsafns Íslands á Akureyri. Þyrlan lenti á bílastæðinu sunnan við Glerártorg og hafði þá múgur og margmenni safnast þar saman.
Nánar síðar í dag.

Mynd: Þorgeir Baldursson

Mynd: Ármann Hinrik