Veitir stílistaráð í nýju smáforriti
„Við getum átt fullan fataskáp af fötum en samt staðið fyrir framan hann og fundist við ekki hafa neitt til að fara í,“ segir stílistinn Hanne Jacqueline Tarnow, sem leysir þetta vandamál og fleiri í glænýju smáforriti, What to wear. Þar miðlar Hanne af 25 ára reynslu sinni og þekkingu í faginu, ekki með það að markmiði að fá konur til að kaupa meiri föt, heldur til að sjá það sem þær eiga fyrir með nýjum augum.
Hanne, sem er annar eigandi tískuvöruverslunarinnar My Little Showroom í miðbæ Akureyrar, hefur unnið sem stílisti í meira en aldarfjórðung. Áður en hún flutti til Akureyrar fyrir fjórum árum síðan starfaði hún sem stílisti í Danmörku, hélt þar námskeið og rak sína eigin tískuvöruverslun í Óðinsvéum, svo fátt eitt sé nefnt. Nýverið sendi hún frá sér glænýtt smáforrit sem ber nafnið What to Wear en markmiðið með því er að aðstoða konur við stíl og fataval, hvar og hvenær sem er. „Þetta er ekki app sem varð til af því að mér fannst gaman að gera eitthvað tengt tísku. Það byggir á meira en 25 ára reynslu minni sem stílisti og þeim þúsundum kvenna sem ég hef unnið með.“ Í gegnum árin segist Hanne hafa séð sömu vandamálin koma aftur og aftur upp hjá konum, þ.e.a.s. að þær geti átt nóg af fötum en viti samt ekkert hverju þær eigi að klæðast. „Oft snýst þetta um óöryggi eða einfaldlega að við festumst í ákveðnum venjum. Við notum sömu flíkurnar alltaf á sama hátt.“

Frá tískusýningu My Little Showroom á Centrum Kitchen & Bar í síðustu viku þar sem smáforritið var kynnt til sögunnar. Myndir: Natalía Nótt.
Blanda af innblæstri og fræðslu
Hanne leggur áherslu á að What to Wear sé ekki hugsað til þess að ýta undir meiri neyslu. „Nei, mig langar einmitt að hjálpa konum að nýta eins mikið og mögulegt er af fötunum sem þær eiga nú þegar og að þær læri að horfa á fataskápinn sinn með nýjum augum,“ segir Hanne og heldur áfram „Þú getur farið inn á Instagram eða aðra samfélagsmiðla og séð endalaust af flottum myndum. En hversu oft tekurðu það sem þú sérð á myndinni og yfirfærir yfir á þinn eigin fataskáp? Til þess að fólk geri það þarf líka þekkingu.“
Hún segir smáforrit sitt vera blöndu af innblæstri og fræðslu. Þar eru meðal annars leiðbeiningar um hvernig byggja má upp góðan grunn, vikuleg stílistaráð, hugmyndir um notkun fylgihluta og leiðir til að forðast misheppnuð fatakaup. Einn liður í smáforritinu nefnist Woman to Woman. Þar fá konur frá ólíkum heimshornum að sýna sinn persónulega stíl og segja frá honum. Annar liður nefnist One Item, Three Ways, þar sem sama flíkin er notuð á þrjá mismunandi vegu – til dæmis í hverdeginum, í vinnunni og þegar farið er út. „Það er einmitt þetta sem mig langar að sýna. Ein flík getur haft miklu fleiri möguleika en við gerum okkur grein fyrir.“ Annar liður í smáforritinu nefnist Woman to Woman. Þar fá konur frá ólíkum heimshornum að sýna sinn persónulega stíl og segja frá honum.

Smáforrit Hanne heitir What to wear. Þar er að finna allskonar hugmyndir og góð ráð varðandi samsetningu á fatnaði, fatakaup og ýmislegt um fylgihluti, svo fátt eitt sé nefnt.
Góður stíll er að finna það besta fyrir þig
Þó að Hanne sé búsett á Akureyri þá horfir hún út fyrir landsteinana með verkefnið. Smáforritið er á ensku og segir hún tungumálið einfalt og aðgengilegt svo konur sem hafa almenna enskukunnáttu geti nýtt sér efnið. Efnið sjálft er blanda af texta og myndböndum og nýtt efni er sett inn vikulega. Hún segir að ný þemu muni bætast reglulega við og þannig muni forritið halda áfram að þróast og verða sífellt stærra safn af þekkingu og hugmyndum. Þá er einnig hægt að bóka Hanne í persónulega ráðgjöf á netinu gegnum smáforritið. Þjónustan getur verið allt frá því að ræða almennar spurningar um persónulegan stíl yfir í Shop Your Closet, þar sem farið er í gegnum fataskáp viðkomandi.
„Kannski hafa margar konur einhvern tímann hugsað um að þær myndu vilja fá aðstoð stílista en hafa ekki haft þann möguleika innan seilingar. En í smáforritinu færðu mig eiginlega beint í vasann. Þekkingin mín er þar og þú getur nálgast hana þegar þér hentar. Mitt mottó er eiginlega no rules, no limits. Ég get gefið þér ákveðnar leiðbeiningar og hjálpað þér að finna hvað hentar þér, en góður stíll snýst alltaf um að finna það sem er best fyrir þig, óháð því á hvaða aldri þú ert eða hvernig líkama þú ert með,“ segir Hanne.

„Ytra og innra byrði manneskjunnar hanga saman í mínum huga. Ef þú ert í fötum sem þér líður vel í og finnst endurspegla þig, þá mætirðu öðruvísi inn í daginn. Þú færð ákveðinn kraft úr fötum sem þér líður vel í og það skilar sér yfir á fleiri svið lífsins,“ segir Hanne.
Útlit og líðan nátengd
Talið berst að því af hverju stíll skiptir máli og fyrir Hanne eru útlit, líðan og sjálftraust nátengd. „Ytra og innra byrði manneskjunnar hanga saman í mínum huga. Ef þú ert í fötum sem þér líður vel í og finnst endurspegla þig, þá mætirðu öðruvísi inn í daginn. Þú færð ákveðinn kraft úr fötum sem þér líður vel í og það skilar sér yfir á fleiri svið lífsins. “
Þess vegna finnst henni ákveðinn misskilningur fólginn í því þegar áhugi á fötum og stíl er afgreiddur sem yfirborðskenndur. „Af hverju megum við ekki nota stílista til þess að hjálpa okkur að öðlast meira sjálfstraust? Með tiltölulega einföldum verkfærum getur okkur stundum liðið miklu betur með okkur sjálf,“ segir Hanne og heldur áfram: „Ég hef alltaf viljað búa til eitthvað þar sem ég get gefið þessa þekkingu áfram til stórs hóps kvenna. Þegar ég er í persónulegri stíliseringu get ég hjálpað konunni sem situr fyrir framan mig. Með smáforritinu get ég miðlað þessu til kvenna hvar sem þær eru í heiminum.“

Hanne miðlar af 25 ára reynslu sinni og þekkingu í faginu í gegnum smáforritið What to wear, ekki með það að markmiði að fá konur til að kaupa meiri föt, heldur til að sjá það sem þær eiga fyrir með nýjum augum.
Vill koma þekkingunni áfram
Það var því tilfinningaþrungin stund þegar margra ára hugmyndavinna birtist loksins sem raunverulegt smáforrit. „Þegar ég sá forritið mitt inni á App Store fóru tárin bara að renna niður kinnarnar á mér. Ég verð ennþá hrærð þegar ég hugsa um það, því þetta skiptir mig svo miklu máli,“ segir Hanne sem kynnti smáforritið formlega til sögunnar á tískusýningarkvöldi á vegum My Little Showroom í síðustu viku á Centrum Bar á Akureyri. Nú þegar eru notendur farnir að týnast inn á forritið en Hanne segir að mánaðaráskrift kosti á við hálft tískutímarit úr bókabúð en verðið lækkar eftir því sem áskriftartíminn er lengri.
„Ég finn að ég er búin að finna vettvanginn þar sem ég get komið allri þessari þekkingu áfram,“ segir Hanne og brosir þegar hún talar um það sem fram undan er en enginn skortur er á hugmyndum og margt spennandi í pípunum. „Núna þarf ég bara að koma þessu verkefni almennilega af stað og gefa því mikla ást. Svo sjáum við hvert þetta leiðir.“
- Sjá fyrra viðtal Akureyri.net við Hanne: „Góður grunnur er límið í fatastílnum“

Afhverju finnst konum þær oft eiga ekkert til að fara í þó fataskápurinn sé fullur? „Oft snýst þetta um óöryggi eða einfaldlega að við festumst í ákveðnum venjum. Við notum sömu flíkurnar alltaf á sama hátt,“ segir stílistinn Hanne sem aðstoðar konur í gegnum glænýtt smáforrit.