Fara í efni
Fréttir

Veitingastaðnum Eyrinni í Hofi lokað

Eigendur veitingastaðarins í menningarhúsinu Hofi á Akureyri hafa ákveðið að loka staðnum. Vegna Covid standi reksturinn ekki undir sér og því sé ekki annar möguleiki í stöðunni.

„Það er með sorg í hjarta sem við tilkynnum það að Eyrin Restaurant hefur verið lokað. Eftir frábærar viðtökur Akureyringa og annarra gesta frá því að við opnuðum haustið 2019 vorum við spennt fyrir því að bjóða upp á dýrindis veitingar við notalegt andrúmsloft í Menningarhúsinu Hofi til framtíðar,“ segir í yfirlýsingu sem eigendur staðarins, hjónin Aðalheiður Hannesdóttir og Guðmundur Ragnar Sverrisson, sendu frá sér í dag.

Hinsvegar, eftir gríðarlegar áskoranir í kjölfar Covid-19 sem þau hafi reynt að aðlagast eftir fremsta megni, með dyggri aðstoð gesta, sé nú orðið ljóst að rekstur veitingastaðarins standi ekki undir sér.

„Eyrin Restaurant var rekinn af okkur hjónunum og voru flutningar norður yfir heiðar með börnum okkar fimm fyrirhugaðir,“ segja þau, allir hafi ætlað að leggjast á árarnar til að skapa framúrskarandi veitingastað en „eftir mikla íhugun höfum við því miður sætt okkur við að vegna áhrifa Covid-19 mun sá draumur ekki verða að veruleika.“

Þau segjast þakklát þrátt fyrir að svona hafi farið. „Við viljum þakka ótrúlega góðar viðtökur og viðskipti við okkur, það hefur verið okkur ómæld ánægja að taka á móti ykkur síðastliðna 14 mánuði,“ segja hjónin.