Fara í efni
Fréttir

Veistu um taflmenn eða annað úr gjöf Fiske?

Willard Fiske.

Í vinnslu er sýning um velgjörðarmann Grímseyinga, Willard Fiske. Sigríður Örvarsdóttir safnafræðingur og hönnuður hefur verið ráðin til verksins en það er í umsjón Akureyrarstofu. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Fiske var bandarískur fræðimaður og mikill skákáhugamaður og Íslandsvinur. Hann lærði íslensku og dvaldi hérlendis um hríð 1879, heillaðist m.a. af miklum áhuga Grímseyinga á skák og færði þeim að gjöf bæði skákborð og taflmenn, auk þess sem Fiske gaf Grímseyingum mikinn bókakost.

„Búið er að skanna allan bókakostinn sem varðveittur er í Grímsey og síðan verður allt safnið skráð, auk þess verður sett upp minningarsýning í Grímsey um þennan merka mann og helstu gripir sem hann sendi Grímseyingum við upphaf 20. aldar gerðir sýnilegir,“ segir á vef bæjarins.

Nú er svo komið að aðeins eitt taflborð úr gjöf Fiske er eftir í eyjunni og engir taflmenn. Biðlað er til þeirra sem málið gæti varðað, að aðstoða við leit að jafnvel minnsta safnkosti. „Ef svo skemmtilega vill til að upp úr geymslukössum komi taflmenn eða annað sem tilheyrir Fiske safninu, mega viðkomandi gjarnan hafa samband með því að senda póst á netfangið sigridur.orvarsdottir@akureyri.is.“