Fara í efni
Fréttir

Veðurblíða í dag og á morgun

Ljósmynd: Þorgeir Baldursson

Blíðviðri er á Akureyri í dag, sól og hægur andvari, og útlit fyrir mjög gott veður um helgina. Á morgun skín sólin áfram og hiti gæti nálgast 15 stig. Á mánudag er útlit fyrir gott veður en svo gæti kólnað tímabundið og von er á einhverri úrkomu. Í dag og á morgun ættu aðstæður að vera góðar til útivistar og hætt við að ungviðið taki upp á því að stökkva í sjóinn sunnan við Hof eins og algengt er í blíðunni. Þorgeir Baldursson rakst á þessa stráka við það tómstundagaman í vikunni.