Fara í efni
Fréttir

Veðrið: Umhleypingar í kortunum um páskana

Mynd: Þorgeir Baldursson

Um páskana má búast við fjölbreyttu íslensku veðurfari og hér norðanlands verður veðrið sennilega óhagstæðast í dag, með gulri viðvörun fram á kvöld og engu skíðafæri. Næstu daga verður líklega léttskýjað og slydda á víxl en hitastig almennt nálægt frostmarki.

Gul viðvörun vegna suðaustan hvassviðris og hríðar tekur gildi á Norðurlandi eystra á hádegi í dag og varir fram til kl. 22. Á vef Veðurstofu Íslands segir um veðrið í dag: „Suðaustan 13-20 m/s og skafrenningur eða snjókoma með versnandi færð, einkum á fjallvegum,“ en sem betur fer er hægt að finna margt til dægrastyttingar á Akureyri og nágrenni fyrir þau sem ætluðu á skíði í dag. Lyfturnar í Hlíðarfjalli voru stöðvaðar um tíuleytið í morgun vegna vinda og einungis Töfrateppið og Auður í gangi, neðst á svæðinu.

Næstu dagar líta betur út. Á morgun, föstudaginn langa, er spáð mun hægari vindi og léttskýjuðu en einhver snjókoma eða slydda gæti gert vart við sig á laugardaginn. Á páskadag er líklegt að létti eitthvað til aftur og síðan er spáð hlýnandi veðri á annan í páskum.