Vaxandi norðanátt: opinn fundur í dag
Viðskiptaráð stendur í dag fyrir opnum fundi með fulltrúum atvinnulífs og stjórnvalda á Norðurlandi. Fundurinn fer fram í Messanum hjá Drift EA við Ráðhústorg og hefst kl. 16:30.
Fundurinn ber yfirskriftina „Vaxandi norðanátt – staða og horfur í atvinnulífi og efnahagsmálum“ þar sem farið verður yfir þróunina, áskoranir og þau tækifæri sem framundan eru.
Þátttakendur í pallborði eru:
- Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi
- Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar
- Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri Slippsins DNG
Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, stýrir fundi og pallborði. Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, fer yfir horfur í atvinnulífi og efnahagsmálum.
Fundurinn er öllum opinn án endurgjalds á meðan húsrúm leyfir. „Við hvetjum Norðlendinga sérstaklega til að mæta og óskum eftir að fundargestir skrái sig fyrirfram,“ segir í tilkynningu frá Viðskiptaráði.
Nánari upplýsingar og skráning á vef Viðskiptaráðs – HÉR