Fara í efni
Fréttir

Varmadælulausn Frosts í áframeldi Laxeyjar

Hallgrímur Steinsson, yfirmaður tæknimála í Laxey, og Guðmundur H. Hannesson framkvæmdastjóri Frosts, til hægri, handsala samninginn. Lengst til vinstri er Hákon Hallgrímsson, sölustjóri Frosts.

Fiskeldisfyrirtækið Laxey í Vestmannaeyjum kaupir varmadælulausn frá Kælismiðjunni Frosti á Akureyri fyrir fyrsta áfanga áframeldis fyrirtækisins í Eyjum og er uppsetning búnaðarins ráðgerð næsta sumar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Frosti.

Unnið hefur verið að uppbyggingu Laxeyjar landeldisfyrirtækis síðan 2019. Annars vegar er um að ræða seiðaeldisstöð í nýju húsi við Friðarhöfn, sem hóf starfsemi í liðinni viku. Hins vegar er áframeldisstöð í Viðlagafjöru sem gert er ráð fyrir að geti framleitt um 27 þúsund tonn af slægðum laxi á ári þegar hún verður komin í full afköst að átta árum liðnum. Áframeldið verður byggt upp í nokkrum áföngum og er miðað við að fyrsti áfangi verði tilbúinn næsta haust og landeldið hefjist þá. Gangi það eftir er miðað við fyrstu slátrun á laxi úr stöðinni árið 2025.

Nýta varmann eins og kostur er

„Í áframeldinu er miðað við að 65% af sjónum verði endurnýttur en 35% vatnsins verði jarðsjór úr borholum á svæðinu. Plötuvarmaskiptarnir sem eru hannaðir af Frosti nýta varmann eins og kostur er frá frárennsli úr eldiskerjunum og varmadælan hitar síðan vatnið upp í +12° eldishitastig,“ segir í tilkynningunni frá Frosti.

Hákon Hallgrímsson, sölustjóri hjá Frosti, segir þetta í fyrsta skipti sem fyrirtækið selji slíkan búnað í landeldisstöð á Íslandi. Hann segir búnaðinn stóran í sniðum, hver fjögurra titanium plötuvarmaskipta sé um tíu tonn, liðlega sex metra langur og um þriggja metra hár. Varmadælan er talsvert umfangsmikil, samanlögð upphitunarafköst á búnaðinum eru um 25 megavött.

Fyrstu laxahrognin voru tekin í seiðaeldisstöðina í Friðarhöfn 28. nóvember sl. Í þessum fyrsta áfanga eru 300 þúsund hrogn sem verða alin upp í 100 gramma seiði. Afkastageta stöðvarinnar í fullum rekstri verður 4 milljónir seiða. Gert er ráð fyrir að næsta haust verði fyrstu seiðin flutt úr seiðaeldisstöðinni í landkvíar í Viðlagafjöru.

4500 tonn af slægðum laxi á ári

Laxey hyggst nýta átta gráðu heitan jarðsjó í landkvíarnar en með varmaskiptunum og varmadælukerfinu er ætlunin að ná hitanum í fjórum eldiskerjum í tólf gráður. Hallgrímur Steinsson, yfirmaður tæknimála hjá Laxey, segir að með því að ná að hita vatnið upp í tólf gráður sé unnt að stytta eldistímann um sem næst tvo mánuði. „Kjörhitastig fyrir laxinn er frá átta og upp í tólf til fjórtán gráður – eftir aðstæðum – en við veljum að hafa tólf gráður í kerjunum fyrir minni fiskinn. Með því næst meiri veltuhraði og betri nýting fjárfestingarinnar.“

„Sem fyrr segir er búnaðurinn frá Frosti í fyrsta áfanga áframeldis Laxeyjar alls átta ker, fimm þúsund rúmmetrar hvert. Áætlað er að hver þeirra sex áfanga sem Laxey byggir upp á næstu árum skili 4500 tonnum af slægðum laxi á ári. Hver áfangi er með sérstakt vatnskerfi.

Boraðar hafa verið rannsóknaholur fyrir jarðsjó í Viðlagafjöru sem hafa skilað góðum árangri. Árni ehf. flutti inn sérstakan bor af gerðinni Liebherr til þess að bora vinnsluholur og er hann nú þegar kominn til Eyja. Gert er ráð fyrir að hefja borun fyrstu vinnsluholanna fljótlega upp úr áramótum. Ætla má að þurfi að bora 10-15 vinnsluholur fyrir fyrsta áfanga áframeldisins en það kemur betur í ljós innan nokkurra vikna.

Í tilkynningu frá Frosti kemur fram að framkvæmdir séu í fullum gangi í Viðlagafjöru. Nú sé m.a. unnið við gríðarlega umfangsmiklar pípulagnir, og raforkudreifihús og fóðurstöð séu í byggingu. Hafist verður handa við uppsetningu eldiskerjanna á fyrri hluta næsta árs, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Lausnin frá Frosti besti kosturinn

Byggt verður inntakshús þar sem ýmsum vélbúnaði verður komið fyrir, þar á meðal varmaskiptunum og varmadælunni frá Frosti. Hallgrímur segir að unnið sé að hönnun hússins og þess sé vænst að það verði tilbúið þegar líður nær vori og í kjölfarið verði unnt að koma búnaðinum fyrir.

„Áður en við sömdum við Frost um kaup á þeirra lausn kynntum við okkur vel hvaða möguleikar væru í boði. Við vitum að samstarfsfyrirtæki Frosts hefur nú þegar afhent sambærilegan vélbúnað og samstæður og reynslan er góð. Það skiptir alltaf máli þegar búnaður er valinn að góð reynsla sé komin á hann. Það skiptir líka máli að þjöppuhlutfall í vélinni er að ég tel einstakt og samanlagður COP-stuðull í því kerfi sem við verðum með er yfir þrjátíu, sem er mjög gott. Að öllu samanlögðu töldum við þetta besta kostinn,“ segir Hallgrímur Steinsson en COP er nýtnistuðull og stendur fyrir hlutfall varmaafls sem varmadælan skilar og raforku sem hún notar.