Fara í efni
Fréttir

Varað við stormi á Norðurlandi í kvöld

Varað er við hvassviðri og stormi á Norðurlandi í kvöld og nótt. Varasamt ferðaverður á Norðurlandi eystra, ekkert ferðaveður á Tröllaskaga og víðar um Norðurland vestra. Skjáskot af vedur.is.

Von er á hvassviðri og stormi á Norðurlandi í kvöld og nótt. Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Norðurland eystra frá kl. 21 í kvöld og appelsínugula viðvörun fyrir Strandir og Norðurland vestra frá kl. 22. 

Lögreglan á Norðurlandi eystra hvetur íbúa til að huga að lausamunum og fylgjast vel með þróun veðursins með tilliti til aðstæðna á hverju svæði. Von er á versta veðrinu á Tröllaskaga og vestanvert við Eyjafjörðinn. Möguleiki er á einhverri hríð með þessu hvassviðri.

Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur einnig ítrekað tilmæli þess efnis að fólk ætti ekki að vera á ferðinni í kvöld og nótt á meðan veðrið gengur yfir og bent á að Veðurstofan hafi lýst yfir sérstökum áhyggjum vegna veðursins í Skagafirði. 

Viðvörun fyrir Norðurland eystra: Sunnan hvassviðri eða stormur, 15-23 metrar á sekúndu, hvassast vestantil á svæðinu þar sem vindhviður geta farið yfir 35 m/sek. Fólk er hvatt til að huga að lausamunum. Varasamt ferðaveður.

Viðvörun fyrir Norðurland vestra: Sunnan stormur eða rok og hríð á fjallvegum, 20-28 m/sek. og vindhviður staðbundið yfir 40 m/sek., hvassast austantil á svæðinu. Líkur eru á foktjóni og er fólk hvatt til að huga að lausamunum. Einnig má búast við hríð á fjallvegum með slæmu skyggni og versnandi færð. Ekkert ferðaveður.